„Maður veit aldrei hvað fram­tíðin ber í skauti sér“ - Vísir

„Maður veit aldrei hvað fram­tíðin ber í skauti sér“ - Vísir

„Maður veit aldrei hvað fram­tíðin ber í skauti sér“ - Vísir

Þessi sýn á lífið hefur mótast af reynslu fjölskyldunnar síðustu ár. Stjúpdóttir Hilmars, Aldís Embla, verður sjö ára í ágúst og lifir með NEHI, lungnasjúkdóm barna sem er svo sjaldgæfur að nákvæmar tölur um algengi hans liggja ekki fyrir. Stærstu rannsóknir á sjúkdómnum ná aðeins til nokkurra tuga eða hundruða barna.

Hilmar kynntist Aldísi þegar hún var tveggja og hálfs árs. Fyrstu árin einkenndust af veikindum, súrefnisþörf og endurteknum veikindatímabilum, en í dag hefur sjúkdómurinn mun minni áhrif á daglegt líf hennar.

Fjölskyldan hefur í gegnum tíðina meðal annars leitað stuðnings hjá félaginu Einstök börn sem Hilmar segir hafa verið mikilvægt bakland þegar takast þarf á við sjaldgæfan sjúkdóm, afla upplýsinga og finna leiðir í kerfi sem getur verið flókið að rata um.

Veiktist mjög auðveldlega

Hilmar er frá Fáskrúðsfirði en býr í Hafnarfirði ásamt fjölskyldu sinni. Þegar talið berst að Aldísi verður fljótt ljóst að sagan um veikindi hennar skiptist nokkuð skýrt í tvennt: annars vegar fyrstu árin, þegar sjúkdómurinn setti mikinn svip á líf hennar og fjölskyldunnar, og hins vegar stöðuna í dag, þar sem hún lifir mun hefðbundnara lífi en áður.

Hilmar var ekki sjálfur kominn inn í líf Aldísar þegar hún veiktist fyrst. Hann kynntist henni þegar hún var tveggja og hálfs árs, en Aníta, móðir hennar, hefur sagt honum frá því sem gerðist fyrstu mánuðina og árin.

Aldís var aðeins um þriggja mánaða þegar alvarlegt atvik varð á meðan fjölskyldan var stödd erlendis.

„Hún fór í rauninni bara í öndunarstopp og þau þurftu að byrja endurlífgun. Eftir að þau komu heim fór eitthvað meira að gerast í greiningarferlinu, því það hafði verið erfitt að fá greiningu. Ég held að læknarnir hafi farið að hlusta aðeins betur eftir þetta. Fyrsta árið bjó hún eiginlega bara á spítala. Hún var mikið í mælingum og súrefni.“

Aldís greindist með lungnasjúkdóminn NEHI, sem er skammstöfun fyrir Neuroendocrine Cell Hyperplasia of Infancy.

Um er að ræða afar sjaldgæfan ungbarnasjúkdóm sem greinist yfirleitt á fyrsta æviári. Sjúkdómurinn getur haft áhrif á súrefnismettun og valdið því að börn þurfi súrefnisgjöf, en Hilmar segir jafnframt að dæmi séu um að súrefnisþörfin minnki mikið eftir því sem börnin eldast. Hann tekur þó skýrt fram að ekkert sé öruggt hvað það varðar og þróunin geti verið mismunandi eftir einstaklingum. Þegar Hilmar kynntist Aldísi þurfti hún enn súrefni stóran hluta dagsins. Hún var þá einnig viðkvæm fyrir sýkingum og veikindum, sem gerði leikskólagönguna oft erfiða.

„Þegar ég kynntist henni var hún enn mikið í súrefni, líka á daginn. Hún átti líka mjög auðvelt með að taka allar leikskólapestirnar og veiktist mjög auðveldlega. Það komu alveg tímabil þar sem hún var heima nánast heilan mánuð. Hún fór kannski í leikskólann í tvo daga og var þá bara aftur orðin veik. Þetta var mikið svona fyrst um sinn.“

Fyrsta æviár Aldísar var að stórum hluta undirlagt af veikindum og sjúkrahúsdvölum.Aðsend

Í fullu fjöri

Hilmar segir ónæmiskerfi Aldísar á þeim tíma ekki hafa verið fullsterkt og því hafi tiltölulega venjulegar umgangspestir getað haft meiri áhrif á hana en önnur börn. Það gat þýtt langar fjarvistir frá leikskóla og endurtekinn hring veikinda og bata. Þegar rætt er um þessi ár gerir hann þó lítið úr því að dramatísera reynsluna. Hann segir einfaldlega að þetta hafi getað verið erfitt og að mikið hafi verið lagt á Aldísi á unga aldri. Sú staða sé hins vegar ekki sambærileg við það hvernig daglegt líf hennar lítur út núna.

„Í dag er hún bara í fullu fjöri. Hún er í skóla, í fimleikum og gerir allt sem, innan gæsalappa, eðlileg börn gera. Hún leikur sér, fer út að hjóla og fer á fimleikaæfingar. Sjúkdómurinn er ekkert að hamla henni í daglegu lífi eins og staðan er núna. Það eina er að hún þarf súrefni á nóttunni.“

Fjölskyldan er með sérstaka súrefnisvél heima sem Aldís notar þegar hún sefur. Hilmar segir að hún geti fallið í súrefnismettun þegar hún fer í djúpsvefn og því þurfi hún súrefni á nóttunni. Vélin fylgir fjölskyldunni einnig þegar hún ferðast. Sú staðreynd að Aldís þarf ekki lengur á súrefni að halda yfir daginn er mikil breyting frá því sem áður var og Hilmar segir fjölskylduna sjá greinilega að heilsufarið hafi farið batnandi með aldrinum. Engin trygging sé þó fyrir því hvernig þróunin verði til lengri tíma.

„Hún stendur sig ótrúlega vel og maður sér alveg að þetta er að skána. Hún er miklu betri í dag en hún var þegar ég kynntist henni. Við vitum samt ekkert hundrað prósent hvernig þetta þróast. Það eru dæmi erlendis um einstaklinga sem hafa nánast hætt að nota súrefni. Það gefur manni auðvitað von um að þetta geti haldið áfram í rétta átt.“

Ekki hægt að ganga að neinu vísu

Sjaldgæfi sjúkdómsins hefur gert það að verkum að fjölskyldan hefur þurft að leita út fyrir hefðbundnar leiðir eftir upplýsingum. Hilmar telur að Aldís kunni að vera eina barnið á Íslandi með sjúkdóminn en tekur fram að hann vilji ekki fullyrða það án staðfestingar. Í samtalinu nefndi hann að aðeins nokkur hundruð tilfelli virtust hafa verið skráð í læknisfræðilegum heimildum á heimsvísu.

„Þetta er mjög sjaldgæfur sjúkdómur og þá er náttúrulega ekki mikið af fólki í kringum mann sem þekkir þetta. Aníta var í samskiptum við fjölskyldu erlendis og þar kom til dæmis fram að strákur hefði hætt að nota súrefni um ellefu ára aldur. Það var auðvitað mjög gott að heyra. Maður fær þá einhverja hugmynd um hvernig þetta getur þróast en það er samt ekkert hægt að ganga að neinu vísu.“

Hilmar segir reynsluna óhjákvæmilega hafa breytt sýn sinni á ýmislegt. Þegar hann er spurður hvað hann eigi við þegar hann segir Aldísi minna sig á það sem raunverulega skiptir máli í lífinu svarar hann á jarðbundinn hátt. Hann talar ekki um einhverja eina stóra niðurstöðu heldur frekar að maður verði meðvitaðri um hversu lítið er í raun sjálfgefið.

Hann segist hafa lært að einblína meira á það sem er fyrir framan hann í stað þess að gera ráð fyrir að hlutirnir verði alltaf eins og þeir eru í dag.

„Maður á ekkert annað en að taka ekki öllum þessum hlutum sem sjálfsögðum. Maður á að grípa tækifærin eins og þau eru og taka einn dag í einu. Svo reynir maður bara að lifa lífinu. Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér. Þetta kennir manni alveg helling.“

Hilmar telur að foreldrar barna með sjaldgæfa eða langvinna sjúkdóma læri mikla þolinmæði. Að hans mati fylgir reynslunni einnig ákveðið æðruleysi, enda þurfi fjölskyldan oft að takast á við aðstæður sem hún hefur lítil áhrif á.Aðsend

Margvíslegur stuðningur

Hilmar Freyr tekur einnig undir að ákveðin þolinmæði og æðruleysi fylgi því að eiga barn sem glímir við langvarandi eða sjaldgæfan sjúkdóm. Fjölskyldan þurfi reglulega að takast á við atriði sem aðrar fjölskyldur þurfa lítið að velta fyrir sér, allt frá súrefnisbúnaði og ferðalögum yfir í upplýsingar um sjúkdóminn sjálfan.

Þar hefur félagið Einstök börn komið við sögu. Hilmar segir fjölskylduna hafa fengið margvíslegan stuðning frá félaginu og að ekki síður mikilvægt sé að vita hvert sé hægt að leita þegar spurningar vakna.

„Þau hafa hjálpað okkur með ýmislegt og eru alltaf tilbúin að aðstoða ef þau geta. Ef það vantar upplýsingar geta þau hjálpað við að afla þeirra, til dæmis um sjúkdóminn, rannsóknir eða meðferðir. Þau hafa líka aðstoðað fjölskyldur í tengslum við ferðalög og bjóða meðal annars upp á ferðastyrki. Svo eru þau mjög dugleg að halda viðburði og koma fjölskyldunum saman. Þetta er bara mjög gott félagsstarf.“

Hilmar nefnir meðal annars jólaböll og fjölskylduviðburði sem félagið stendur fyrir, en fjölskyldan hafði nýlega sótt einn slíkan þegar viðtalið fór fram. Hann segir mikilvægt að félag af þessu tagi sé til staðar, sérstaklega þegar fjölskyldur glíma við greiningar sem fáir aðrir þekkja. Það snúist ekki einungis um fjárhagslega eða verklega aðstoð heldur líka um að þurfa ekki að afla allra upplýsinga sjálfur eða upplifa að fjölskyldan sé ein á báti.

Hilmar hefur ákveðið að safna áheitum fyrir Einstök börn, þar sem fjölskyldan þekkir af eigin raun hversu mikilvæg starfsemi félagsins getur verið.Aðsend

Auðveld ákvörðun

Það er einmitt vegna þessarar reynslu fjölskyldunnar sem Hilmar hefur nú sett sér nýtt markmið.

Hann hyggst hlaupa sitt fyrsta hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu og safna áheitum fyrir Einstök börn.

„Ég tók bara þessa ákvörðun og þá verð ég að standa við hana. Ég er kominn á fulla ferð í undirbúningnum og ætla til dæmis að hlaupa tíu kílómetra í kvöld. Þetta er auðvitað áskorun en það er bara hluti af þessu. Þegar maður er búinn að ákveða eitthvað þarf maður einfaldlega að klára það.“

Upphaflegt markmið Hilmars var að safna 60 þúsund krónum fyrir félagið. Þegar viðtalið fór fram hafði hann þegar safnað 51 þúsund krónum og var því nálægt markmiðinu. Hann sagðist þá bjartsýnn á að það næðist og opinn fyrir því að hækka það ef söfnunin héldi áfram að ganga vel.

Ástæða þess að hann valdi Einstök börn var aldrei flókin. Fjölskyldan þekkir starf félagsins af eigin raun og veit hvað það getur skipt miklu máli að aðstoð sé til staðar þegar barn greinist með sjaldgæfan sjúkdóm.

„Við höfum fengið stuðning frá þeim og vitum hvað félagið getur gert fyrir fjölskyldur. Það fannst mér því eðlilegur málstaður að hlaupa fyrir. Ef maður getur með þessu bæði safnað peningum og vakið athygli á starfinu þá er það bara jákvætt. Aldís er auðvitað ástæðan fyrir því að þetta stendur mér svona nærri. Nú þarf ég bara að klára þessa 21 kílómetra.“

Hér má heita á Hilmar og styðja við starfsemi Einstakra barna.

#aldrei #framtíðin #hvað #maður #veit


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262924380d/-madur-veit-aldrei-hvad-fram-tidin-ber-i-skauti-ser-

📰 Aðrar fréttir

„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
Sigríður Margrét er fimmtíu ára gömul og sækir tískuinnblásturinn meðal annars til kvenna í kringum sig. Sömuleiðis er hún dugleg að lesa tískutímarit...
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
„Við söfnuðum yfir 100 undirskriftum og fundum hentugt húsnæði í Reykjavík til að opna kjörstað fyrir komandi kosningar í Serbíu, eins og kosningalög ...
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
📅 07.10.2026 👁️ 0
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, er harðlega gagnrýndur fyrir að segja að Hamas njóti stuðnings á Vesturlöndum þar...
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
📅 07.10.2026 👁️ 0
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
Í dag eru þrjú ár síðan Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Íbúar Gaza vöknuðu við árásir snemma morguns sem m...
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
📅 07.10.2026 👁️ 0
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
Kennarasamband Íslands kynnti í dag tillögur að stefnumótun til framtíðar í menntamálum, Blásum byr í seglin, og þau verkefni sem ráðast þarf í til að...
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
📅 07.10.2026 👁️ 0
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
Kötturinn Dreki fer ránshendi um Vesturbæinn í Reykjavík, tekur ýmislegt ófrjálsri hendi - en sinnir líka hreinsunarstörfum.„Hann er þjófóttur kisi. H...
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborði Mars, fangaði í ágúst sólarupprás á rauðu plánetunni svokölluðu. Það var þegar farið var notað til a...
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
Högni Alvar Harðarson Önnuson er formaður Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, en hann útskýrir í samtali við Vísi að félagið bjóði um þessar...
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
📅 07.10.2026 👁️ 0
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
Craig Morris was sentenced to three years and nine months in prison at Northampton Crown Court.
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
Í auglýsingu í Lögbirtingablaði dagsins segir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 3. júní síðastliðinn og skiptum lokið þann 23. sep...
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
📅 07.10.2026 👁️ 0
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
Eigandi lóðar í frístundabyggð í Grímsnes- og Grafningshreppi hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann kærði breytingu á deiliskipulag fyrir byggðina s...
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
📅 07.10.2026 👁️ 0
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
Maricarmen Abascal, 87, was forcibly removed on a stretcher from her apartment of more than 70 years in September.
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
📅 07.10.2026 👁️ 0
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
Fyrstu umræðu um áðurnefnd húsaleigulög ríkisstjórnarinnar, sem oft eru kölluð leigubremsa, var fram haldið á Alþingi í dag en stjórnarandstaðan vildi...
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
📅 07.10.2026 👁️ 0
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
Man charged with 13 attempted murders including British child
📅 07.10.2026 👁️ 0
Man charged with 13 attempted murders including British child
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
Magnús Þór var framsögumaður á blaðamannafundi Kennarasambandsins sem fór fram í Réttarholtsskóla í dag. Þar kynnti hann stefnumótun og áherslur samba...
Greipur skemmtir í Sykursalnum
📅 07.10.2026 👁️ 1
Greipur skemmtir í Sykursalnum
Grínistinn Greipur Hjaltason verður með uppistand í Sykursalnum, Grósku, á fimmtudagskvöld og hefst sýningin kl. 21. Yfirskrift uppistandsins er „Grei...
Þétta sam­starfið í út­norðri - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Þétta sam­starfið í út­norðri - Vísir
Þetta kom fram á blaðamannafundi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Jens Frederik Nielsen, formanns grænlensku landsstjórnarinnar, og Beini Joh...
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Kom á óvart að Miðflokkurinn studdi ekki brottfararstöðina
📅 07.10.2026 👁️ 1
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Kom á óvart að Miðflokkurinn studdi ekki brottfararstöðina
Með því að koma ekki upp brottfararstöð fyrir brottvísaða útlendingar hafa Íslendingar í raun ekki staðið við Schengen skuldbindingu í um áratug. Í lj...
Nýsköpunar- og frumkvöðlasetrið Arctell Sandvik opnað
📅 07.10.2026 👁️ 1
Nýsköpunar- og frumkvöðlasetrið Arctell Sandvik opnað
Nýsköpunar- og þekkingarsetrið Arctell Sandvik var formlega opnað í dag. Setrinu er ætlað að vera vettvangur fyrir nýsköpun og frumkvöðlastarf, og er ...
Sólveig greindist með brjóstakrabbamein: „Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast“
📅 07.10.2026 👁️ 2
Sólveig greindist með brjóstakrabbamein: „Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast“
Sólveig Jónsdóttir greindist með brjóstakrabbamein í maí 2026 eftir að hafa fundið fyrirferð í brjóstinu fyrr á árinu. Hún segist hafa upplifað alls k...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Bókun 35 – Höfum við efni á meiri óvissu og veikari samkeppnisstöðu?
📅 07.10.2026 👁️ 2
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Bókun 35 – Höfum við efni á meiri óvissu og veikari samkeppnisstöðu?
Ísland þarf meiri erlenda fjárfestingu, fleiri alþjóðleg fyrirtæki og fleiri vel launuð þekkingarstörf. Við þurfum að lækka fjármagnskostnað og styrkj...
Pútín skerðir frelsi ungra karlmanna – Talið vera undanfari herkvaðningar
📅 07.10.2026 👁️ 2
Pútín skerðir frelsi ungra karlmanna – Talið vera undanfari herkvaðningar
Rússar óttast aðra stóra herkvaðningu í landinu eftir að Vladímír Pútín forseti skerti frelsi ungra manna fyrir skemmstu. Ungir menn mega nú meðal ann...
Orðið skýrt hvenær ökumenn undir áhrifum lyfseðilsskyldra lyfja mega stjórna ökutæki
📅 07.10.2026 👁️ 2
Orðið skýrt hvenær ökumenn undir áhrifum lyfseðilsskyldra lyfja mega stjórna ökutæki
Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu lyfja tók gildi í dag.Neysla lyfja ökumanna verður að vera í samræmi við fyrirmæli læknis o...
Telur uppsögn kjarasamninga geta leitt til langrar deilu
📅 07.10.2026 👁️ 2
Telur uppsögn kjarasamninga geta leitt til langrar deilu
Halla Gunnarsdóttir óttast að kjarasamningum verði sagt upp á morgun. Ekkert samtal sé í gangi við Samtök atvinnulífsins. Lögð hafi verið fram lausn f...
Conservatives united behind Kemi Badenoch - but party still needs to win over voters
📅 07.10.2026 👁️ 2
Conservatives united behind Kemi Badenoch - but party still needs to win over voters
Kemi Badenoch has the support of her party but the Tories still trail Labour and Reform in opinion polls.
Rússar segja enga hættu á faraldri – Mongólía eflir landamæraeftirlit
📅 07.10.2026 👁️ 2
Rússar segja enga hættu á faraldri – Mongólía eflir landamæraeftirlit
Rússneska lýðheilsustofnunin, Rospotrebnadzor, segir enga hættu á að faraldur brjótist út í landinu. Þetta eru viðbrögð við fréttum af dauðsfalli 28 á...
„Við erum til­búin að skoða lengingu skóla­ársins“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
„Við erum til­búin að skoða lengingu skóla­ársins“ - Vísir
Í vor fór fram töluverð umræða um fjölda skóladaga á Íslandi eftir að Menntamálaráðuneytið birti tilkynningu þar sem fram kom að kennsludagar væru sty...
Árekstur og bílvelta á Vesturlandsvegi
📅 07.10.2026 👁️ 2
Árekstur og bílvelta á Vesturlandsvegi
Árekstur varð á Vesturlandsvegi við Bauhaus á fjórða tímanum í dag. Einn bíll valt út af veginum.Hildur Rún Björnsdóttir, lögreglufulltrúi lögreglustö...
Bein út­sending: Blaða­manna­fundur Krist­rúnar, Beinis og Jens Frederik - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Bein út­sending: Blaða­manna­fundur Krist­rúnar, Beinis og Jens Frederik - Vísir
Hægt verður að fylgjast með blaðamannafundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að ríkisstjórnaroddv...
Rannsókn á leikfangabyssum lokið og ákvörðun um saksókn fram undan
📅 07.10.2026 👁️ 2
Rannsókn á leikfangabyssum lokið og ákvörðun um saksókn fram undan
Rannsókn er lokið vegna gruns um vopnalagabrot um verslunarmannahelgina á Akureyri. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort fimm menn, sem reyndust h...
Canada suspends plans to expand assisted dying to people with mental illness
📅 07.10.2026 👁️ 2
Canada suspends plans to expand assisted dying to people with mental illness
People with mental illness alone were to be eligible for assisted dying in Canada in March 2027, but that has now been paused indefinitely.
Breytingar á úthlutun feli í sér „óviðunandi óvissu fyrir fjölmiðlarekstur“
📅 07.10.2026 👁️ 2
Breytingar á úthlutun feli í sér „óviðunandi óvissu fyrir fjölmiðlarekstur“
Útgáfufélagið Birtíngur ehf. krefst þess að Úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla endurskoði frummat um að félagið uppfylli ekki skilyr...
Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu - Vísir
Douglas hefur verið á fjölmiðlatúr fyrir ævisögu sína, One Helluva Ride, sem kom í bókabúðir í gær. Douglas ljóstraði upp um það í síðustu viku að han...
Opinberir styrkir ýta höfundum út í útgáfubransann
📅 07.10.2026 👁️ 2
Opinberir styrkir ýta höfundum út í útgáfubransann
Ný skáldsaga Steinars Braga kemur út hjá nýja forlaginu Fuglinum. Útgefandi segir fyrirkomulag ríkisstyrkja til bókmennta ýta höfundum út í útgáfubran...
Frumvarp um námsgögn á ís þrátt fyrir 20 ára innviðaskuld
📅 07.10.2026 👁️ 3
Frumvarp um námsgögn á ís þrátt fyrir 20 ára innviðaskuld
Viðvarandi fjármagnsskortur hefur leitt til uppsafnaðs skorts á námsgögnum í grunnskólum á Íslandi.Frumvarp til nýrra heildarlaga um námsgögn átti að ...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Sjötíu ára skuldahringrás að renna sitt skeið. Hvað gerist þá á Íslandi?
📅 07.10.2026 👁️ 3
Sigvaldi Einarsson skrifar: Sjötíu ára skuldahringrás að renna sitt skeið. Hvað gerist þá á Íslandi?
Nú blikka mörg viðvörunarljós samtímis. Ég hef skrifað á þessu ári um vaxandi ríkisskuldir heimsins og sérstaklega um langa enda vaxtakúrfunnar, því þ...
Hafþór ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot – Flutti inn mikið magn efna frá Tenerife
📅 07.10.2026 👁️ 3
Hafþór ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot – Flutti inn mikið magn efna frá Tenerife
Héraðssaksóknari hefur ákært mann á fimmtugsaldri fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Maðurinn er sakaður um að hafa staðið að innflutningi á samtals 6...
Umdeild fiskþurrkun Samherja sem svipt var starfsleyfi á að fá að starfa áfram að sinni
📅 07.10.2026 👁️ 3
Umdeild fiskþurrkun Samherja sem svipt var starfsleyfi á að fá að starfa áfram að sinni
Umhverfis- og orkustofnun hefur kynnt áform um að veita Samherja bráðabirgðaheimild til að starfrækja fiskþurrkun í Laugum í Reykjadal í Þingeyjarsvei...
SA á leið í árs­há­tíðar­ferð á meðan klukkan tifar í kjara­deilu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
SA á leið í árs­há­tíðar­ferð á meðan klukkan tifar í kjara­deilu - Vísir
Sigtryggur Magnason, forstöðumaður miðlunarsviðs SA, staðfestir við Vísi að árshátíðarferðin á Hvar hefjist á morgun og standi yfir til mánudags en mb...
Jafn­réttis­stofa sver af sér á­byrgð - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
Jafn­réttis­stofa sver af sér á­byrgð - Vísir
Vísir ræddi málið við Hafstein Einarsson doktor í félagstölfræði sem setti stór spurningamerki við framkvæmd könnunarinnar. Hann sagði um að ræða vinn...
Sver af sér á­byrgð á rann­sókn um karl­mennsku - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Sver af sér á­byrgð á rann­sókn um karl­mennsku - Vísir
Vísir ræddi málið við Hafstein Einarsson doktor í félagstölfræði sem setti stór spurningamerki við framkvæmd könnunarinnar. Hann sagði um að ræða vinn...
Bílvelta á Vestur­lands­vegi - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
Bílvelta á Vestur­lands­vegi - Vísir
„Við erum á vettvangi, þar urðu ekki mikil slys á fólki en það valt bíll eftir árekstur. Hann er kominn á hjólin aftur,“ segir Stefán. „Það losnar von...
Family of Norfolk GP Hannah Terry 'devastated' by her death
📅 07.10.2026 👁️ 2
Family of Norfolk GP Hannah Terry 'devastated' by her death
Hannah Cain's family say they have been "devastated" by her death on Sunday.
Tímamótadómur í Bandaríkjunum: Kviðdómur segir ranglega ásakaða karla þolendur kynferðislegrar áreitni
📅 07.10.2026 👁️ 3
Tímamótadómur í Bandaríkjunum: Kviðdómur segir ranglega ásakaða karla þolendur kynferðislegrar áreitni
Í máli sem gæti reynst tímamótamál fyrir bandaríska háskóla hefur kviðdómur í Maryland komist að þeirri niðurstöðu að karlmaður, sem ranglega var saka...
Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ás­geirs óábyrg - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ás­geirs óábyrg - Vísir
Ragnar tók til máls eftir að þingmenn stjórnarandstöðunnar höfðu óskað eftir að umræðu um leigubremsufrumvarp hans yrði frestað. Vísað var til skorts ...
Börn af erlendum uppruna ólíklegri til að taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi
📅 07.10.2026 👁️ 3
Börn af erlendum uppruna ólíklegri til að taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi
Verulega dregur úr íþróttaþátttöku barna eftir að grunnskólagöngu lýkur og marktækur munur er á þátttöku í skipulögðu íþróttastarfi eftir uppruna.Þett...
Þrjú ár frá upphafi stríðsins á Gaza - Ísraelsmenn minnast fórnarlamba árásar Hamas
📅 07.10.2026 👁️ 3
Þrjú ár frá upphafi stríðsins á Gaza - Ísraelsmenn minnast fórnarlamba árásar Hamas
Þrjú ár eru frá hryðjuverkaárás Hamas-samtakanna á Ísrael sem var kveikjan að stríðinu á Gaza. Þess er minnst víða í Ísrael í dag. Vopnahlé hefur veri...
Fyrrverandi yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar dúsir í gæsluvarðhaldi
📅 07.10.2026 👁️ 3
Fyrrverandi yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar dúsir í gæsluvarðhaldi
Fyrrverandi yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar dúsir í gæsluvarðhaldi Aug­ust Hann­ing er grun­að­ur um að hafa afl­að leyni­legra gagna úr leyni­þjón­...
Notorious Glasgow gangland enforcer Paul Ferris dies aged 62
📅 07.10.2026 👁️ 3
Notorious Glasgow gangland enforcer Paul Ferris dies aged 62
The criminal-turned-author is believed to have died on Tuesday night after a short illness.