Maður kveikti í sjálfum sér fyrir framan höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York í gær. Maðurinn, Lobga Rangzen, var úrskurðaður látinn á spítala síðar um kvöldið.
Ekki hefur verið gefið upp um ástæður þess að Rangzen kveikti í sjálfum sér en bandarískir fjölmiðlar og tíbetskir aðgerðarsinnar segja hann hafa barist fyrir réttindum Tíbets.
Rangzen er sagður hafa barist gegn nýjum lögum í Kína sem miða að því að móta sameiginlegt þjóðerni meðal ólíkra þjóðarbrota. Aðgerðarsinnar hafa gagnrýnt þetta og segja að lögin eigi eftir að skerða enn frekar mannréttindi minnihlutahópa líkt og Úigúra og Tíbeta sem yfirvöld í Kína eru sökuð um að ofsækja.
Talsmaður Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, segist harma atvikið og sendi fjölskyldu mannsins samúðarkveðjur.