Lögmaður og fangavörður hafa enn réttarstöðu grunaðs í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á stórfelldri fíkniefnaræktun á Raufarhöfn sem uppgötvaðist á síðasta ári.
Lögmaðurinn Gunnar Gíslason var handtekinn 18. nóvember í tengslum við rannsókn málsins líkt og fangavörður á Litla-hrauni sem talinn er hafa verið í samskiptum við lögmanninn samkvæmt heimildum mbl.is.
Yfirgripsmikið mál
Fangavörðurinn var sendur í leyfi frá störfum vegna gruns um brot í opinberu starfi.
„Þetta er yfirgripsmikið mál en ég get sagt þér það að allir sem voru grunaðir í þessu máli eru enn þá með stöðu sakbornings,“ segir Aðalsteinn í samtali við mbl.is.
„Það er einfaldlega bara vegna þess að málið er ekki komið áfram til ákæruvalds og síðan dómstóla.“