Ljósmyndarinn Páll Stefánsson segir það ávallt taka sig aftur til augnabliksins að skoða gamlar ljósmyndir.
Í yfir 30 ár starfaði Páll hjá Iceland Review. Hann rifjar upp einstaka ljósmynd sem hann hafði sérstaklega mikið fyrir að ná. Þá hafði hann klifrað upp fjall og beðið lengi eftir því að ná réttu myndinni.
Hann hafi síðan fengið myndina í hendurnar og farið með hana til ritstjórnar. Þá hafi eigandi og stofnandi blaðsins, Haraldur Hamar, sagt við hann að hann væri allt of upptekinn af því hvað hann lagði mikið á sig til að ná myndinni, sem væri bara ekki svo góð.
Þannig segir Páll að maður láti blindast af því hvað maður lagði mikið á sig við að ná ljósmynd sem geti truflað ásýnd manns á raunveruleikann.
Í klippunni hér að ofan má ásamt stuttum bút úr spjalli við Pál sjá nokkrar af hans mögnuðu ljósmyndum.
Áskrifendur geta horft á þáttinn í heild sinni hér fyrir neðan: