Rafleiðni í ánni hefur hækkað jafnt og þétta undanfarna sólarhringa og er nú sögð óvenjuhá fyrir árstíma í tilkynningu Veðurstofunnar. Það bendi til þess að lítið hlaup sé nú í gangi. Hlaup af þessari stærðargráðu eru sögð vel þekkt í Múlakvísl.
Mikil gasmengun fylgir hlaupinu að þessu sinni. Brennisteinsvetni mældist yfir heilsuverndarmörkum á gasmæli við Lágujvola, um tvo kílómetra frá jaðri Kötlujökuls.
„Því er varhugavert að staldra við nálægt ánni eða vera nálægt upptökum hennar við jökuljaðarinn. Hægviðri undanfarna daga eykur einnig hættuna á að gas safnist fyrir í lægðum. Ef fólk finnur fyrir einkennum, svo sem sviða í nefi eða augum, á að yfirgefa svæðið strax,“ segir í tilkynningunni.