Hjúin birtu sameiginlega færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem þau skrifa: „Mikil gleði - Lítið kríli á leiðinni.“
Ylfa er fædd árið 1997 og starfar sem hönnuður. Hún rekur fatamerkið Ylfa Studio. Viktor Weisshappel er fæddur árið 1992, starfar sem grafískur hönnuður og er meðeigandi Striks Studio í Bankastræti.