Við kíkjum einnig í kosningamiðstöðvar þar sem taugar eru þandar og spyrjum fólk á förnum vegi hvort það hafi gert upp hug sinn og hvað því finnst um kosningabaráttuna.
Þá verðum við í beinni frá miðstöð erlendra fjölmiðla sem eru á landinu vegna atkvæðagreiðslunnar og kynnum okkur áhugann í útlöndum.
Við verðum auk þess í beinni frá mannhafi við norsku konungshöllina þar sem fólk er saman komið til þess að kveðja Harald Noregskonung sem er fallinn frá.
Nýtt tímabil í handboltanum hefst í kvöld. Við förum yfir stöðu mála í Sportfréttum.
Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Sýnar, Vísis og Bylgjunnar klukkan 18:30.