32 ára sænskur karlmaður lést eftir alvarlega líkamsárás sem hann varð fyrir á HM-hátíð á Íslandsbryggju í Kaupmannahöfn síðastliðinn þriðjudag. Lögreglan í Kaupmannahöfn staðfesti andlát mannsins en tildrög árásarinnar eru enn í rannsókn.
Stimpingar milli tveggja hópa
Árásin átti sér stað á viðburði þar sem sýnt var frá leik Fílabeinsstrandarinnar og Noregs á risaskjá á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Samkvæmt frétt DR hlaut maðurinn heilablæðingu og brot á hryggjarlið eftir högg á hálsinn.
Sjónarvottar sem ræddu við danska fjölmiðilinn Ekstra Bladet sögðu að stimpingar hafi brotist út á milli tveggja hópa þegar mark var skorað í leiknum, en óvíst er hver þáttur hins látna var í þeim átökum.
Á að baki alvarlegan afbrotaferil
31 árs gamall maður hefur verið kærður í tengslum við málið og úrskurðaður í 26 daga gæsluvarðhald. Hinn grunaði neitar sök en hann á að baki alvarlegan afbrotaferil og hefur áður hlotið sjö ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps og brot á hnífalögum.
Gestir kalla eftir öryggi
Tíðindin af andlátinu hafa vakið mikinn usla og ótta á Íslandsbryggju, þar sem HM-hátíðarhöld hafa haldið áfram á risaskjá. Atvikið hefur knúið fram háværa umræðu um öryggismál á svæðinu.
„Það er algjörlega fáránlegt að svona lagað geti gerst þegar maður borgar sig inn á viðburð, og að öryggisgæslan sé ekki meiri,“ sagði William Hildebrandt, sem sótti hátíðina ásamt bróður sínum. Hann tók þó fram að lögreglugæsla hefði verið sýnileg og aukin í kjölfar árásarinnar, sem jók öryggistilfinningu gesta.
Málið hefur jafnframt valdið pólitískum ágreiningi. Jakob Næsager, sem fer með málefni barna og ungmenna í Kaupmannahöfn, krafðist þess að viðburðinum yrði lokað strax í kjölfar árásarinnar. Christopher Røhl, sem fer með málefni menningar- og tómstundamála, lagðist gegn því og fullyrti að einn ofbeldismaður ætti ekki að fá að eyðileggja hátíðina fyrir almenningi.