Óskar Hrafn er einn umtalaðasti knattspyrnuþjálfari landsins í dag. Hann lék sem atvinnumaður í knattspyrnu en hætti aðeins 25 ára vegna bakmeiðsla og sneri sér þá að blaðamennsku þar sem hann var meðal annars fréttastjóri DV, fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis og Fréttatímans og stýrði íþróttavef á Bretlandi að frumkvæði Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
Óskar var um tíma sparkspekingur á Stöð 2 Sport en sneri svo aftur í boltann þegar hann tók við þjálfun meistaraflokks karla hjá Gróttu árið 2017. Þaðan færði hann sig yfir til Breiðabliks og gerði liðið að Íslandsmeisturunum 2022 áður en hann sneri heim í Vesturbæinn 2024, fyrst sem yfirmaður knattspyrnumála og síðan einnig þjálfari meistaraflokks karla.
Laufey greindi vinum sínum á samfélagsmiðlum frá tíðindunum í síðustu viku þar sem hún sagði Óskar sinn besta og traustasta vin í 41 ár og lýsti erfiðum tímum. Heimildir Vísis herma að Óskar hafi tjáð leikmannahópi KR um skilnaðinn á æfingu í kjölfarið.
Þau Óskar og Laufey eiga þrjú börn saman en þeirra á meðal eru landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson, sem spilar hjá Real Sociedad á Spáni, og Emilía Óskarsdóttir sem spilar sem atvinnumaður hjá HB Köge í Danmörku.