Landsréttur staðfesti í gær dóm yfir tveimur mönnum vegna stórfelldra tollalagabrota. Tveggja ára skilorðsbundin refsing þeirra var staðfest en sektargreiðslur þeirra voru lækkaðar til muna. Þeir voru dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða 1,1 milljarð króna hvor en Landsréttur lækkaði sektina í tæpa 741 milljón á hvorn.
Mennirnir eru Snorri Guðmundsson, oft kenndur við Póló, og Sverrir Þór Gunnarsson, sem átti Drekann.
Tóbak og sígarettur sem flutt voru til landsins fyrir verslanirnar voru skráð sem aðrar vörutegundir. Þannig komust þær hjá því að greiða 740.742.386 í lögbundið tóbaksgjald.