Á vef Veðurstofunnar segir að með kvöldinu bæti í úrkomu, en í nótt og á morgun, laugardag, megi búast við rigningu eða súld á nær öllum vesturhelmingi landsins og heldur ákveðnari suðlægum áttum.
„Einhverjar skúraleiðingar verða austanlands, en lengast af úrkomuminna. Hitatölur fara heldur lækkandi, en áfram verður hlýtt á Austfjörðum.
Á laugardagskvöld verður farið að draga úr úrkomu, en þá má búast við allhvössum eða hvössum vind á hálendinu og til fjalla á Snæfellsnesi og Norðurlandi.
Á sunnudag dregur úr vindi og úrkomu með hlýnandi veðri, en hitatölur gætu farið í allt að 20 stig norðaustanlands. Síðdegis má svo búast við rigningu austanlands.
Útlit er fyrir því að þetta stef, væta með köflum í flestum landshlutum, verði endurtekið vel yfir miðja næstu viku,“ segir á vef Veðurstofunnar.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag: Suðvestan 5-13 m/s og talsverð eða mikil rigning eða súld, einkum vestanlands, en úrkomuminna austanlands fram eftir degi. Hiti 11 til 17 stig, hlýjast á Austfjörðum.
Á sunnudag: Suðvestlæg átt 8-13 m/s, en hægari sunnan heiða síðdegis. Víða skúrir, en styttir upp fyrir norðan. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á mánudag: Norðaustlæg átt 3-10 m/s, skýjað með köflum og úrkomulítið, en fer að rigna austanlands með kvöldinu. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast suðvestanlands.
Á þriðjudag: Suðaustaustlæg eða breytileg átt, en norðaustan stekkingur norðvestanlands. Talsverð rigning, einkum suðaustanlands, en dregur víða úr vætu þegar líður á daginn. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Norðausturlandi.
Á miðvikudag: Útlit fyrir fremur hæga austlæga eða breytilega átt, en norðaustan kalda norðvestantil. Skýjað með köflum og allvíða rigning eða skúrir. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast á Suðurlandi.
Á fimmtudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt og rigningu, en úrkomuminna suðvestanlands. Hiti breytist lítið.