Maður var fluttur með töluverða brunaáverka á Landspítalann í morgun eftir að hafa kveikt í sér. Lögreglan á Suðurnesjum hafði haft afskipti af manninum og beitti rafbyssu til þess að reyna að yfirbuga hann. Lögregla segir að í kjölfarið hafi hann kveikt í sér, eftir að hafa verið búinn að hella yfir sig bensíni.
Eyþór Rúnar Þórarinsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, staðfestir í samtali við fréttastofu að maður hefði verið fluttur á Landspítalann, töluvert brenndur um allan líkamann. Lögreglan kallaði sjúkraflutningamenn á vettvang en maðurinn var með meðvitund þegar hann var fluttur af vettvangi.
Í tilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum, sem send var út á fjölmiðla eftir að fréttastofa óskaði eftir upplýsingum um málið, kemur fram að maðurinn hafi ekki farið að fyrirmælum lögreglu.
„Viðkomandi hafði hellt yfir sig bensíni og hótaði að kveikja í sér. Lögregla beitti rafvarnarvopni til að yfirbuga viðkomandi, sem virtist ekki skila árangri. Viðkomandi nær þá að bera eld að sér með kveikjara sem hann hafði meðferðis,“ segir í tilkynningunni.
Lögregla fékk heimild til þess að nota rafbyssur í september 2024. Frá þeim tíma og til síðustu áramóta beittu lögreglumenn slíkum tækjum ellefu sinnum gegn mönnum við handtöku, samkvæmt skýrslu ríkislögreglustjóra sem kom út í mars.
Þar að auki drógu lögreglumenn slík tæki upp eða ógnuðu meintum brotamanni með þeim 100 sinnum á fyrstu sextán mánuðunum sem þau voru í notkun.