Eigandi Sóleyjarbakka, sem er ein þeirra jarða sem land eiga að Stóru-Laxá í Hreppum, krefst þess í bréfi sem hann hefur sent öllum félagsmönnum í veiðideild árinnar að samningi við leigutaka Stóru-Laxár verði sagt upp eða rift einhliða.
Hann krefst þess einnig að boðað verði til aukaaðalfundar í deildinni sem og að formanni hennar verði gert að víkja vegna vanhæfis.
Í bréfinu, sem Morgunblaðið hefur undir höndum og skrifað er af Guðmundi Kristinssyni eiganda Sóleyjarbakka, segir m.a. að það verði að teljast til stórfelldra vanefnda á samningnum hvernig leigutakinn hafi stofnað til ófriðar í kringum Stóru-Laxá og allt nærumhverfið í algjörri óþökk landeigenda og veiðiréttarhafa.
„Er það óumdeilanlega andi leigusamningsins og frumforsenda þess að ráðstafa veiðirétti til leigutaka í 10 ár, að ekki sé stöðugur ófriður og yfirgangssemi af hálfu leigutaka,“ segir Guðmundur sem gerir jafnframt kröfu um að fá afhentan leigusamninginn með fylgiskjölum og að óháðum endurskoðanda verði veittur aðgangur að öllum fjárhagsupplýsingum.
Lesa má nánar um málið á bls.9 í Morgunblaðinu í dag