Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknarflokksins í Hafnarfirði, segist vera miður sín að vera ásakaður um trúnaðarbrest. „Það kemur mjög á óvart að vera sakaður um óheilindi,“ segir hann.
Hann kveðst ekki útiloka samstarf við neinn eftir vendingar dagsins.„Það er fullt traust áfram hjá okkur til allra aðila.“
Ásakanir um trúnaðarbrest og svik
Í dag tilkynntu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði að þeir hefðu slitið viðræðum við Framsókn um áframhaldandi meirihlutasamstarf. Ástæðuna sögðu þeir vera alvarlegan trúnaðarbrest. Framsókn hefði handsalað samkomulag um meirihlutasamstarf við aðra flokka en þá.
Hildur Rós Guðbjargardóttir, oddviti Samfylkingarinnar, segir að flokknum hugnist ekki heldur samstarf við Framsókn vegna svika. „Framsókn var þarna með tvo skildi á lofti.“
Valdimar segir að eftir kosningar hafi þreifingar verið á milli flokka. Eftir erfiðan fund með Sjálfstæðismönnum á mánudagskvöld hafi hann tilkynnt oddvita þeirra að samtalið næði ekki lengra að sinni.
„Það var ekkert samkomulag“
„Í framhaldinu átti ég óformleg samtöl við oddvita Samfylkingar og Viðreisnar,“ segir hann. Valdimar segir það hafa verið alveg skýrt að viðræðurnar hafi verið óformlegar.
Þá hafi samtöl við Sjálfstæðisflokkinn leitt í ljós að hægt væri að komast yfir það sem á stóð í viðræðum flokkanna í byrjun viku. Á miðvikudag hafi sú ákvörðun verið tekin að hefja formlegar viðræður við Sjálfstæðismenn.
Valdimar hafnar því að viðræður hans við Samfylkinguna hafi verið komnar langt. „Það var ekkert samkomulag um eitt né neitt.“
Spurður hvort það komi honum á óvart að kollegar hans í bæjarstjórn upplifi trúnaðarbrest segist Valdimar miður sín yfir því. „ Þannig hef ég ekki unnið og aldrei unnið.“
Hann segir að honum hafi fundist orð þeirra „mjög krefjandi og erfið“. Þau eigi ekki við rök að styðjast.