Seinustu skoðanakannanir Gallup og Maskínu fyrir kosningar reyndust ansi nálægt niðurstöðu kosninganna í gær.
Sjálfstæðisflokkurinn stendur uppi sem ótvíræður sigurvegari kosninganna í Reykjavík með 32,5% atkvæða og fær níu borgarstjórnarfulltrúa.
Í seinasta þjóðarpúlsi Gallup fyrir kosningar mældist Sjálfstæðisflokkurinn með alls 31,3% sem hefði skilað flokknum átta fulltrúum. Flokkurinn mældist með sama fylgi í seinustu könnun Maskínu.
Miðflokkurinn einnig á siglingu
Miðflokkurinn bætti við sig þremur fulltrúum og er hægt að færa rök fyrir því að hann hafi endað í öðru sæti í kosningunum á eftir Sjálfstæðisflokknum. Alls hlaut flokkurinn 12,6% atkvæða og mældist ekki með svo mikið fylgi í neinum af skoðanakönnunum Gallup og Maskínu í aðdraganda kosninganna. Í þjóðarpúlsi Gallup mældist hann þó með tæp 11% sem hefði einnig skilað flokknum þremur fulltrúum.
Vinstri flokkar mælast vel en fá minna
Sé litið til vinstri mældust nær allir flokkar á þeim vængnum með meira fylgi en reyndist í kjörkössunum.
Samfylkingin stóð uppi með 18% atkvæða og þannig 5 fulltrúa en Vinstrið hlaut 9,4% og 2 fulltrúa.
Í seinustu könnunum fyrir kosningar mældist Samfylkingin með 19,4% hjá Maskínu og 21,5% hjá Gallup. Báðar niðurstöður hefðu skilað Samfylkingunni jafn mörgum fulltrúum og hann á endanum hlaut.
Vinstrið mældist með fylgi í kringum 11% hjá bæði Gallup og Maskínu sem hefði skilað flokknum þremur fulltrúum.
Píratar misstu alla þrjá fulltrúa sína og fengu 1,9% atkvæða. Flokkurinn mældist með ívið meira fylgi í seinustu skoðanakönnunum (2,3-2,4%) fyrir kosningar en þó ekki með mann inni.
Sósíalistar misstu einn fulltrúa en héldu einum. Flokkurinn hlaut 4% en mældist nær 5% í könnunum.
Viðreisn, Framsókn og Flokkur fólksins
Viðreisn bætti við sig manni í kosningunum í gær og hlaut alls 10,5% atkvæða. Nokkur munur var á fylgi Viðreisnar á milli kannana Gallup og Maskínu. Flokkurinn mældist með 12% fylgi hjá Maskínu og 3 fulltrúa en 9,8% hjá Gallup með 2 fulltrúa.
Framsókn missti næst flesta fulltrúa á eftir Pírötum eða tvo en heldur þó einum manni. Flokkurinn hlaut 6,8% atkvæða en mældist með 4,7% hjá Gallup en 6,1% hjá Maskínu.
Flokkur fólksins missti sinn fulltrúa og á því ekki lengur borgarfulltrúa í Reykjavík. Flokkurinn mældist með undir 3% fylgi í skoðanakönnunum en hlaut að lokum 3,3% atkvæða.