Jakob Birgisson, uppistandari og fyrrverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, gengst við því að hafa snert samstarfskonu sína í ráðuneytinu á ósæmilegan hátt. Í kjölfar atviksins lét hann af störfum hjá ráðuneytinu og hætti áfengisneyslu. Vísir greinir frá þessu. Skjáskot hefur gengið milli manna þar sem ónefnd fyrrverandi samstarfskona Jakobs í dómsmálaráðuneytinu sakar hann um kynferðislega áreitni.
Jakob Birgisson gengst við því að hafa snert samstarfskonu á ósæmilegan hátt