Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segja það óásættanlegt í lýðræðissamfélagi að ráðherrum sé hótað vegna skoðana þeirra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra greindi frá því í Bítinu á Bylgjunni í morgun að henni hefðu borist alvarlegar hótanir.
Líf hennar hefði tekið breytingum á síðustu vikum vegna þessa og málið væri á borði lögreglu. Ráðherrann upplýsti ekki um hvers eðlis hótanirnar hefðu verið.
Þorgerður gaf ekki kost á viðtali að ríkisstjórnarfundi loknum í dag. Það gerðu Kristrún og Inga. Inga sagði það ömurlegt og ólíðandi að ráðherrum væri hótað.
Síðustu dagar hafa verið ansi hatrammir og það eru ekki bara ósannindi og lygar heldur ofbeldistaktík og hótanir. Þannig að já, þetta er síðasta sort og algjörlega í engum takt við þá lýðræðisveislu sem við erum að gefa þjóðinni okkar kost á núna,
Hefur þér eða öðrum ráðherrum borist viðlíka hótanir?
Ég hef nú ekki fengið morðhótanir eða neitt slíkt en svona ákveðið... ákveðið push.
Kristrún sagði ljóst að mikil harka hefði færst í umræðuna á lokametrunum en heilt yfir hefði hún verið góð. Hún vildi ekki tjá sig um það hvort henni hefðu borist viðlíka hótanir.
Ég hef haft orð á því að það eru, að mér sýnist, fjársterkir aðilar sem eru að gefa verulega í núna á lokametrunum að dreifa því sem mér finnst vera misvísandi og beinlínis rangar upplýsingar til að hræða fólk frá því að segja já.