Icelandair flutti 545 þúsund farþega í júní. Það er eilítið minna en í júní í fyrra eða einu prósenti. Sætanýting var tæp 86 prósent og stundvísi tæp 85 prósent.
Af farþegum í júní voru 35 prósent á leið til Íslands, 19 prósent frá Íslandi og 41 prósent tengifarþegar. Fimm prósent ferðuðust með innanlandsflugi Icelandair.
Í tilkynningu frá Icelandair segir að farþegum sem ferðuðust frá Íslandi hafi fjölgað um 12 prósent milli ára og farþegum innanlands um ellefu prósent. Farþegum til Íslands fækkaði um 1 prósent og tengifarþegum um 8 prósent.
Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 16 prósent og fraktflutningar, mældum í tonnkílómetrum, jukust um 6 prósent.
Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 4 prósent. Það skýrist af aukinni nýtingu sparneytnari flugvéla, áframhaldandi áherslum á umbætur í rekstri og hárri sætanýtingu, að því er segir í tilkynningunni.
„Við höldum áfram að leggja ríka áherslu á áreiðanlega þjónustu, samhliða áframhaldandi flotaendurnýjun og almennum rekstrarumbótum. Þetta skilaði sér meðal annars í 4% samdrætti á kolefnislosun á hvern tonnkílómetra og minni eldsneytisnotkun,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóri Icelandair.