Rúmlega fimm hundruð manns söfnuðust saman til mótmæla í gær við nýja ræðismannsskrifstofu Bandaríkjanna í Nuuk á Grænlandi. Nýja skrifstofan, sem er á þremur hæðum, var opnuð í gær.
„Hypjið ykkur, Bandaríkin!“ kölluðu mótmælendur fyrir utan nýju ræðismannsskrifstofuna. Margir voru með grænlenska þjóðfánann og spjöld sem á stóð: Make America Go Away eða: Fáið Bandaríkin til að fara í burtu og: We are not for sale eða: Við erum ekki til sölu.
Það hefur verið mikil spenna milli Bandaríkjanna og Grænlands og Danmerkur vegna ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland, sem náði hámarki í lok janúar. Kenneth Howery, sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku, sagði í samtali við grænlenska sjónvarpið við vígslu nýju ræðismannsskrifstofunnar að Bandaríkjaforseti ætli ekki að beita valdi til að taka yfir landið. Framtíð Grænlands sé í höndum Grænlendinga.
Hvorki formaður landstjórnar Grænlands né fulltrúar dönsku ríkisstjórnarinnar mættu á opnun skrifstofunnar. Bandaríkin hafa frá 2020 haft skrifstofu að láni hjá danska hernum í snotru rauðu húsi en sú nýja er þrjú þúsund fermetrar, á þremur hæðum, í miðborg Nuuk.
Í umfjöllun danska ríkisútvarpsins kom fram að hátíðleg stemning hefði verið á nýju skrifstofunni. Boðið hefði verið upp á sauðnautapylsur, rétti undir bandarískum og grænlenskum áhrifum og þjóðsöngvar beggja þjóða fluttir. Fyrir utan hafi andrúmsloftið verið allt annað.
Aqqalukkuluk Fontain, sem skipulagði mótmælin, flutti ræðu fyrir utan nýju skrifstofuna.
„Hlustið á Grænlendinga. Við erum ekki til sölu.“
Eftir ræðuna sneru mótmælendur baki í nýju skrifstofuna og stóðu þöglir í tvær mínútur.