Stofnfundur hreyfingarinnar „Áfram Ísland“ var haldinn í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll í gær. Þar kom saman fólk á öllum aldri sem leggst gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið.
Að loknum fundinum ræddi blaðamaður mbl.is við nokkra unga fundargesti og fékk að heyra hvernig hefði verið á fundinum og hvað skipti þá máli þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst.
Ræðumenn fundarins voru Björn Zoëga læknir, Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður og Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands. Halldór Benjamín Þorbergsson hagfræðingur stýrði fundinum og setti hann með ávarpi.
Stærðfræðineminn ánægður með fundinn
Jakob Lars Kristmannsson, stærðfræðinemi við Háskóla Íslands, var ánægður með fundinn.
„Mér leist bara frábærlega á þetta, þetta var geggjaður fundur og Ólafur Ragnar auðvitað frábær eins og alltaf,“ sagði Jakob við mbl.is.
Hann segir engan berjast betur fyrir hagsmunum Íslands en Íslendingar sjálfir.
„Það mun enginn embættismaður í Brussel hafa þetta að leiðarljósi.“
Fundurinn á jákvæðum nótum
Gunnhildur Sigurbjörnsdóttir, Unnur Björnsdóttir og Andrea Alda Björnsdóttir stóðu hressar í mannfjöldanum úti á Austurvelli, fyrir utan Sjálfstæðissalinn, eftir fundinn.
Þær voru ánægðar með að fundurinn hafi verið á jákvæðum nótum.
„Og hann minnir mann á hvað þetta er í raun mikilvæg kosning,“ sagði Gunnhildur.
Er okkur betur borgið utan Evrópusambandsins?
„Mér finnst aðallega mikilvægt að við höfum allan ákvörðunarrétt sem við kemur okkar landi og að vera ekki að afsala því til einhverra annarra,“ sagði Andrea, en hún er tannlæknir.
Gunnhildur, sem er laganemi við Háskóla Íslands, og Unnur, sem stundar hagfræðinám við Háskólann í Reykjavík, tóku undir þau orð vinkonu sinnar.
Er bjartsýnn á niðurstöðuna „nei“
Vinirnir Jóhann Árni Sigmarsson, Fannar Logi Valdorf Sigurðsson og Dagur Björgvin Jónsson voru einnig hressir eftir fundinn.
„Mér leist rosalega vel á hann, flottir ræðumenn og allt mjög skýrt,“ sagði Jóhann Árni.
„Maður finnur líka bara svolítið eldmóðinn fyrir því hversu heit umræða þetta er að fara að vera,“ sagði Fannar Logi og bætti við að hann væri bjartsýnn á niðurstöðuna „nei.“
Jóhann Árni er flugnemi, Fannar Logi er að byrja í laganámi við Háskóla Íslands og Dagur Björgvin stundar nám við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ.
„Skiptir ekki máli hvort þú ert ungur eða gamall“
Guðrún Lilja Zoëga fjármálaverkfræðingur og Sigurbjörn Zoëga viðskiptafræðinemi við Háskóla Íslands sögðu stemninguna á fundinum hafa verið góða.
„Geggjuð stemning og vel tekið undir,“ sagði Guðrún Lilja.
„Já, mér leist sjúklega vel á þetta. Ótrúlega mikil stemning og ótrúlega mikið af fólki. Gaman að sjá það, það var bara röð út,“ sagði Sigurbjörn.
Fyrir þeim skiptir sjálfstæði Íslands mestu máli og sögðu þau það skipta máli fyrir fólk á öllum aldri.
„Það skiptir ekki máli hvort þú ert ungur eða gamall,“ sagði Sigurbjörn.







