Hútar náðu völdum yfir hafnarborginni Mocha í Jemen í dag. Þeir segja öll skip geta siglt örugg um Rauðahaf, nema skip frá Sádi-Arabíu.
Heimildarmenn Reuters úr jemenska stjórnarhernum segja Húta hafa aukið ítök sín við Bab el-Mandeb-sund. Um það liggur ein mikilvægasta siglingaleið heims, til suðurs úr Rauðahafi.
Sádi-Arabar hafa stólað á siglingar um sundið eftir að Hormússund lokaðist nær alveg vegna stríðs Bandaríkjanna við Íran. Engin þjóð flytur út meiri olíu en Sádi-Arabar.
Olíuverð rýkur upp
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað um fimm prósent í dag eftir þessi tíðindi og verðið á Brent-norðursjávarolíu fór yfir hundrað og fimm dali á tunnu. Það rauf hundrað dala múrinn í gær í fyrsta sinn síðan í júlí.
Sádar eru lykilbandamenn Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum og hafa frá árinu 2015 farið fyrir fjölþjóðaher sem styður stjórnarherinn í Jemen. Hundruð þúsunda hafa farist í borgarastyrjöldinni í Jemen sem hófst ári fyrr. Hútar og alþjóðlega viðurkennd stjórn landsins sömdu um vopnahlé 2022. Þrátt fyrir að það hafi fallið skömmu síðar úr gildi hafði vopnahléð haldið að mestu þar til nýlega.
Væringar gætu reynst Írönum vel
Hútar eru hliðhollir Írönum og ef þeir ná fullum tökum á Bab el-Mandeb-sundi gæti það dregið verulega úr flutningi olíu frá Mið-Austurlöndum með tilheyrandi verðhækkunum. Það gæti reynst Írönum vel og bætt stöðu þeirra í mögulegum samningaviðræðum um endalok stríðsins við Bandaríkin.
Stríðið í Íran og tilheyrandi hækkun olíuverðs eru á meðal helstu áhrifaþátta sem hafa dregið verulega úr stuðningi við Trump heimafyrir. Vinsældir hans hafa aldrei mælst jafn litlar og nú.
Sjálfur sagði Trump í dag að hann byggist við að stríðinu lyki strax eftir að þingkosningum í nóvember væri lokið.