Óttast er að nokkur hundruð ferðamenn hafi farist í gríðarlegum skyndiflóðum og aurskriðum sem riðu yfir svæði við landamæri Nepals og Tíbets í morgun.Hátt í 400 ferðamanna og göngufólks er saknað og hafa lík 31 manns þegar fundist.Hamfarirnar hafa valdið gríðarlegri eyðileggingu í Rasuwa-héraði í Nepal og handan landamæranna í Tíbet. Hús, vegir og brýr hafa sópast á brott og myndskeið frá svæðinu sýna gríðarlegan vatns- og aurflaum ryðjast í gegnum byggð.
Hundruð ferðamanna saknað eftir hamfaraflóð – Óhugnanlegt myndskeið sýnir eyðilegginguna