Hrun hafstraumkerfis Atlantshafsins gæti þegar verið óumflýjanlegt, samkvæmt nýrri rannsókn breskra vísindamanna. Kerfið á stóran þátt í að loftslag Norðurlanda er tiltölulega milt og ef það stöðvast gæti orðið nær óbyggilegt á Íslandi vegna kulda.
Í nýrri grein í vísindatímaritinu New Scientist kemur fram að samkvæmt hermilíkanarannsókn breskra vísindamanna séu líkur á að hrun hafstraumkerfis Atlantshafsins, AMOC, gæti verið óhjákvæmilegt.
Vísindamennirnir gerðu hermilíkön með bráðnun Grænlandsjökuls miðað við magn gróðurhúsalofttegunda sem sýndu að ef hámarki gróðurhúsalofttegunda er þegar náð og bráðnun jökulsins hækkar yfirborð sjávar um einungis 54 millimetra fyrir árið 2100 eru tíu prósent líkur á að hrun kerfisins sé þegar óumflýjanlegt.
„Þessi grein notar ákveðna tegund af hermilíkönum við að kanna ólíkar sviðsmyndir um möguleika á hruni og niðurstaðan er sú að eins og stendur sé það þannig að við séum búin að losa nógu mikið til þess að líkurnar séu nú þegar orðnar tíu prósent,“ segir Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands.
Umdeildar tölur eins og stendur
„Þessar tölur eru allar mjög umdeildar eins og stendur,“ segir Halldór.
„Það er erfitt að ná mati á þeim sem er ekki mjög háð þeim forsendum sem menn gefa sér. Þannig að nákvæmlega hvort líkurnar eru 5% eða 10% miðað við núverandi aðstæður, það er eitthvað sem er engan veginn hægt að negla niður, en það sem er hægt að negla niður úr þessari stúdíu og mörgum öðrum er að eftir því sem meira er losað því meira aukast líkurnar á að það verði hrun.“
„Eftir því sem meira er losað, því meira aukast líkurnar á að það verði hrun.“
Líkurnar aukist eftir því sem meiri losun gróðurhúsalofttegunda er. „Eftir því sem losunin nær hámarki síðar, þeim mun meira hlýnar og mun meiri verða líkurnar á hruni.“
Hrun kerfisins gæti komið af stað nýju kuldaskeiði í Norður-Evrópu. Halldór bendir á að áhrifin komi fram mun víðar.
„Úrkoma í Evrópu mun færast til, það mun þorna meira í Suður-Evrópu og það kemur til með að hafa áhrif á landbúnað og fleira.“