Veikindi komu upp í hrossum danska landsliðsins á nýliðnu Norðurlandamóti íslenska hestsins í Svíþjóð. Undir lok mótsins sýndu sum hross merki um hita og veikindi.
Á vef MAST segir að sýnataka hafi farið strax af stað til að útiloka alvarlega smitsjúkdómavalda. Niðurstöður voru neikvæðar.
Skoðað var hvort veikindin tengdust fóðri. Ekki er vitað til þess að fleiri hross hafi veikst síðan mótinu lauk og hættan því líklega liðin hjá.
Íslenska stofninum stafar ekki hætta af
„Sem betur fer á alþjóðlegum mótum sem þessum þá er almenn regla að hýsa hross frá hverju landi aðskilin og líkamshiti þeirra er mældur tvisvar á dag. Þannig uppgötvast þessi veikindi snemma og það tekst að því er virðist vera að takmarka þau við afmarkaðan hóp,“ segir Þóra Jóhanna Jónasdóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun.
Hún segir íslenska stofninum ekki stafa hætta af veikindunum. Íslenskir þátttakendur hafi verið vel upplýstir um stöðu mála og hvaða smitvarnarráðstöfunum þeir ættu að fylgja við heimkomu.
Stofninn hefur takmarkað ónæmi gegn smitsjúkdómum
Íslenski hrossastofninn er einangraður og hefur því takmarkað ónæmi gegn mörgum smitsjúkdómum sem finnast erlendis. Þar að auki er þéttleiki hrossa mikill hér á landi í stórum hesthúsahverfum og hross ferðast mikið á milli landshluta.
„Reynsla af fyrri faröldrum sýnir að smit breiðist hratt út hér á landi og gæti reynst mjög erfitt að hefta útbreiðslu smitsjúkdóms þegar hann er kominn til landsins á annað borð,“ segir á vef MAST.
Margt gert til að hindra komu smitsjúkdóma til landsins
Þóra bendir á að innflutningur á hrossum sé óheimill og því sé engin hætta á að smit berist til landsins með lifandi dýrum.
„Við grípum líka til annarra úrræða. Við bönnum innflutning á notuðum reiðtygjum og reiðhönskum. En við grípum líka til annarra úrræða, við bönnum innflutning á notuðum reiðtygjum og reiðhönskum og eins leðurfatnað og vaxfatnað sem getur borið með sér smit, til þess að vernda og hindra smit í okkar hesta.“
Reiðtygi eru þau áhöld sem eru notuð til útreiða, svo sem hnakkur og beisli.
Þóra bendir öllum hestamönnum á að kynna sér vel leiðbeiningar á heimasíðu MAST. Það sé mjög mikilvægt.