Vegagerðin hyggst loka austurakrein Suðurlandsvegar við Gaulverjabæ á morgun, miðvikudag, vegna malbikunarframkvæmda, að því gefnu að veður leyfi.
Lokað verður fyrir umferð til austurs við Gaulverjabæjarveg frá klukkan 7 til 17. Umferð í vesturátt verður hleypt fram hjá vinnusvæðinu en ökumönnum á leið austur verður vísað um Gaulverjabæjarveg og Villingaholtsveg.
Vegagerðin biður vegfarendur um að virða merkingar og hraðatakmarkanir á svæðinu og sýna aðgát, þar sem vinnusvæðin eru þröng og starfsfólk og vinnuvélar verða nærri akstursbrautum.