Hún og fyrrverandi utanríkisráðherrann Guðlaugur Þór Þórðarson tókust þar hart á.
Einnig verður rætt við atvinnuvegaráðherra Hönnu Katrínu Friðriksson um hvalveiðar en Hafrannsóknastofnun gaf út kvóta í síðustu viku.
Að auki fjöllum við um hitamál í Hvalfirði þar sem fyrrverandi bæjarstjóri á Akranesi segir ekkert tortryggilegt við framboð sitt til oddvita nýs framboðs í Hvalfjarðarsveit.
Einnig heyrum við í Trump Bandaríkjaforseta sem var til viðtals um skotárás sem gerð var í Washington um helgina.
Í sportpakka dagsins verður fjallað um leikinn í gær þar sem Valsmenn jöfnuðu einvígið gegn Grindvíkingum í körfunni.