Enn virðist eitthvað í að tilkynnt verði um formlegar meirihlutaviðræður í Reykjavík. Í gær leit út fyrir að það yrði gert snemma í dag, samkvæmt heimildum fréttastofu. Að sögn Friðjón R. Friðjónssonar, fráfarandi borgarfulltrúa og varaborgarfulltrúa sem sér um samskipti fyrir hönd Hildar Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðismanna er enn verið að meta stöðuna eftir einkasamtöl hennar við Björgu Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar, Einar Þorsteinsson Framsóknarflokki og Ara Edwald Miðflokki í gær.
Friðjón segir að þeir fundir hafi gengið vel, enn sé verið að meta stöðuna og hvaða möguleikar séu fyrir hendi. Hann segir ekki hafa verið ákveðið hvort Hildur kalli borgarstjórnarflokk Sjálfstæðismanna saman í dag eða hvort oddvitarnir fari aftur á hennar fund. „Það þarf meiri yfirlegu,“ segir Friðjón sem útilokar ekki að tíðinda gæti verið að vænta síðar í dag.
Í dag er vika frá kosningum, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn vann yfirburðasigur í Reykjavík, fékk þar níu fulltrúa en var með sex áður.