Hildur horfir til beggja átta

Hildur horfir til beggja átta

Hildur horfir til beggja átta

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks í Reykjavík horfir til tveggja kosta til myndunar meirihluta í borgarstjórn. Annars vegar tveggja flokka meirihluti með Miðflokki, og hins vegar þriggja flokka samstarf með Viðreisn og Framsóknarflokknum.

Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í Reykjavík segir í samtali við fréttastofu að Hildur hafi skýra valkosti.

„Við erum búin að verja miklum tíma saman, við oddvitarnir, síðasta sólarhringinn og það eru auðvitað einhver óformleg samtöl hingað og þangað. Það eru tveir mjög skýrir valkostir og augljóst að Hildur er með boltann. Hún fékk þannig niðurstöður upp úr kössunum þannig við tökum fagnandi þeim samtölum sem munu eiga sér stað í dag og næstu daga.“

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, hefur beðið Guðmund Árna Stefánsson, flokksbróður sinn og oddvita framboðsins í Hafnarfirði, afsökunar á orðum sem hún lét falla á kosninganótt.

Samfylkingin missti helminginn af fylgi sínu í Hafnarfirði og fór úr fjórum bæjarfulltrúum í tvo.

Guðmundur Árni sagði sjálfur í viðtali við fréttastofu að hann þurfti að hugsa sinn gang. Ingibjörg tók undir það síðar á kosningavökunni og bætti við að hann hefði jafnvel átt að hugsa sinn gang fyrir kosningarnar.

Í Facebook-færslu fyrr í dag segir Ingibjörg:

„ Það var nú ekki sanngjarnt af mér að segja þetta og Guðmundur Árni á þetta ekki skilið. Hann hefur lagt mikið af mörkum til Samfylkingarinnar á undanförnum árum. Ég hef þegar beðið hann afsökunar á þessu.“

Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn á Akranesi hafa náð samkomulagi um að hefja meirihlutaviðræður. Þetta staðfestir Líf Lárusdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins.

„Við Ragnar, oddviti Framsóknar og frjálsra, höfum handsalað meirihlutaviðræður og þær eru hafnar í dag og halda áfram næstu daga,“ segir Líf. Ragnar Sæmundsson er oddviti Framsóknarflokksins og frjálsra á Akranesi.

Sjálfstæðisflokkurinn hlaut góða kosningu á Akranesi í gær eða 33,6% atkvæða og þrjá fulltrúa. Framsóknarflokkurinn fékk 23,6% og missir einn fulltrúa. Áður var Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta með Samfylkingunni sem hlaut í gær 22,3% atkvæða og tvo fulltrúa. Viðreisn og Miðflokkurinn fengu einn fulltrúa hvor.

„Fyrst og fremst er ég gríðarlega þakklát fyrir þennan stuðning,“ segir Líf Lárusdóttir sem segist hafa fundið fyrir miklum meðbyr í kosningabaráttunni.

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi og oddviti Sjálfstæðisflokksins, er sigurreifur í færslu á Facebook.

Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 70% atkvæða í sveitarstjórnarkosningunum í Ölfusi í gær, þrátt fyrir það sem Elliði segir hafa verið kosningabaráttu við þingflokk og ráðherra. Þar á hann við kosningabaráttu Samfylkingarinnar, sem ráðherrar og starfsmenn þingflokks tóku þátt í.

„Hvað þá forsætisráðherra sem gekk hér um og bankaði á dyr og lagði sjálfa sig undir. Það er ekkert að því. Hver er siðurinn í sínu landi,“ skrifar Elliði.

Hann segir frambjóðendur Samfylkingarinnar í Ölfusi hafa stigið ólíkt fram.

„Þau voru málefnaleg og trú sjálfu sér. Þau sýndu stórmennsku í að mæta til okkar og óska okkur til hamingju með stórsigurinn, þegar úrslit lágu fyrir. Ég hlakka til samstarfs við þau. Ég veit að þar fer gott fólk,“ skrifar Elliði.

Oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni segir báða kosti mögulegs meirihluta í borgarstjórn góða: þriggja hluta meirihluta með Viðreisn og Sjálfstæðisflokki, og tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum.

Hilmar Gunnarsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, segist virkilega ánægður með niðurstöður kosninganna. „Þetta er bara frábær sigur fyrir okkur,“ segir hann.

Flokkurinn hlaut 42,2% atkvæða og 5 fulltrúa af 11 og er þannig í lykilstöðu til að mynda meirihluta.

Hilmar segir að flokkurinn vilji byrja á því að lækka álögur á íbúa,

„Að reyna að stíga aðeins á bremsuna varðandi fasteignaskatta hérna í Mosfellsbæ,“ segir hann. „En svo erum við búin að setja saman flotta málefnaskrá og stöndum hörð á henni þegar við förum að tala við fólk í dag og næstu daga,“ segir Hilmar.

Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og L-listinn hafa hafið formlegar meirihlutaviðræður á Akureyri. Þetta staðfestir Óðinn Svan Óðinsson, oddviti L-listans, við fréttastofu.

Framboðin fengu öll tvo fulltrúa í kosningunum og geta myndað sex manna meirihluta.

Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og oddviti Framsóknarflokksins, segir niðurstöðu kosninganna stórkostlega.

„Við erum að fá rúm tvö þúsund fleiri atkvæði en við fengum í heild síðast og það eru skýr skilaboð til okkar frá bæjarbúum að þeir vilja hafa okkur áfram við stjórn bæjarins,“ sagði hann í kosningaútvarpi RÁSAR 2 en flokkurinn hlaut um 11% fleiri atkvæði en í síðustu kosningum, alls 24,3%.

Framsókn bætir við sig einum fulltrúa og er með þrjá líkt og Sjálfstæðisflokkurinn sem tapar einum.

Meirihlutinn heldur sem Valdimar túlkar sem traustsyfirlýsingu til flokksins og meirihlutans. Hann segir að viðræður um meirihlutasamstarf við Sjálfstæðisflokkinn hefjist strax í dag. Miðflokkurinn kemur inn sem nýr flokkur og telur Valdimar að landslag borgarstjórnarinnar verði ívið breiðara að þessu sinni.

Kristján Þór Kristjánsson, oddviti Framsóknarflokksins á Ísafirði, segir að meirihlutaviðræður hefjist strax í dag. Hann á þó ekki vona á því að þær klárist fyrr en síðar í vikunni.

„Við ætlum nú bara að hittast og ræða málin eftir þetta viðtal,“ segir hann. Áhersla hafi verið lögð á að mynda samstöðu innan sveitarfélagsins. Við teljum það heillavænlegt að ná ákveðinni samstöðu,“ sagði hann í kosningaútvarpi RÁSAR 2 þar sem Pétur Magnússon og Hulda Geirsdóttir fóru yfir helstu niðurstöður kosninganna í gær.

Ísafjarðarlistinn sem var í hreinum meirihluta bauð ekki fram að þessu sinni og varð Framsóknarflokkurinn stærstur að þessu sinni með fjóra fulltrúa og 34,3% atkvæða. Alls eru 9 fulltrúar í Ísafjarðarbæ og flokkurinn því einum fulltrúa frá hreinum meirihluta.

Kristján Þór segir það merkilegt að Ísafjarðarlistinn hafi ekki farið fram en listinn hafi verið blanda Samfylkingar, Vinstri grænna og Viðreisnar ásamt óháðum.

„Þetta held ég að hafi verið í fyrsta skipti frá upphafi Ísafjarðarbæjar árið 1996 sem fimm flokkar voru að berjast um þetta,“ segir hann.

„Við erum gríðarlega stolt af þessum árangri, þetta er gríðarleg bæting,“ sagði Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og oddviti flokksins í Reykjanesbæ, í kosningaútvarpi Rásar 2.

Flokkurinn er í lykilstöðu og er í raun ekki hægt að mynda meirihluta án hans. Vilhjálmur segist opinn fyrir samvinnu með flestum flokkum og gerir tilkall til bæjarstjórastólsins.

Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig tveimur fulltrúum í kosningunum og er alls með fimm fulltrúa. Alls eru 11 fulltrúar í Reykjanesbæ og flokkurinn þannig nálægt hreinum meirihluta.

Næstur á eftir Sjálfstæðisflokknum er Framsóknarflokkurinn með þrjá fulltrúa.

„Þetta er bara það sem við fundum í kosningabaráttunni, að fólk var að kalla eftir breytingum og tók vel í okkar málflutning,“ segir Vilhjálmur.

Hann segir að helst hafi verið kallað eftir breytingum í skipulagsmálum, þá hvernig húsnæðisuppbygging til framtíðar er hugsuð og atvinnustefnu bæjarins.

„Að atvinnulífinu yrði tekið opnari örmum og þörfum þess mætt hraðar svo það öfluga atvinnulíf sem er hér á staðnum fái betri jarðveg til að vaxa og dafna,“ segir hann.

Þá hafi einnig íþróttamál, velferðarmál og útlit bæjarins verið mikið til umræðu.

Niðurstöður kosninganna á Akureyri voru virkilega áhugaverðar. Alls fengu fjórir flokkar tvo fulltrúa: Sjálfstæðisflokkurinn, L-listinn, Samfylkingin og Framsókn.

Þrír flokkar fengu svo einn fulltrúa en það eru Miðflokkurinn, Vinstri græn og Akureyrarlistinn. Mjótt var á munum milli L-listans og Sjálfstæðisflokksions eða alls um 16 atkvæði.

Við blasir flókin staða þar sem ekki er ljóst hvert meirihlutasamstarfið verður.

„En það eru líka margir möguleikar sem gerir þetta spennandi,“ segir Óðinn sem tekur fram að núverandi meirihluti sé þó fallinn.

Flestir flokkar hafi tekið daginn snemma og óformlegar viðræður séu hafnar.

„En engir fundir byrjaðir,“ segir Óðinn sem segist ekki ætla að gera tilkall til bæjarstjórastólsins miðað við niðurstöður kosninganna.

„Nei, alls ekki, ég held að það verði fyrst að sjá hverjir ná saman og skoða málefnin en svo kemur eftir á hverjir ætla að sitja í hvaða stóli,“ segir hann.

Talningu í Langanesbyggð lauk klukkan 7:30 í morgun en þar fóru fram óbundnar kosningar.

454 voru á kjörskrá í sveitarfélaginu og kosningaþátttaka mældist 57,9%. Eftirfarandi einstaklingar hlutu kosningu í sveitarstjórn:

Mateusz Swierczewski
Jóhann Hafbrg Jónasson
Júlíus Þröstur Sigurbjartsson
Christina Elisabeth Merkel
Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir
Sigurður Ragnar Kristinsson
Sigurður Þór Guðmundsson

Varamenn þeirra eru:

Dagur Indriðason
Björn Sigurður Lárusson
Vikar Már Vífilsson
Hanna Margrét Úlfsdóttir
Silvia Jónsdóttir
Jódís Ósk Jónsdóttir
Jóhann Bjarni Einarsson

16 nýir fulltrúar taka sæti í borgarstjórn eftir kosningarnar. Sjö þeirra koma af lista Sjálfstæðisflokksins og þrír frá Miðflokki.

Kannanir Gallup og Maskínu fyrir kosningar reyndust ansi nálægt þeim niðurstöðum sem urðu. Hægri flokkar bættu við sig en ívið minna reyndist í kjörkössum fyrir vinstri flokka en spáð hafði verið fyrir.

Sjálfstæðisflokkurinn stendur uppi sem ótvíræður sigurvegari kosninganna í Reykjavík með 32,5% atkvæða og fær níu borgarstjórnarfulltrúa. Flokkurinn mældist ívið undir því í seinustu könnunum og hefði fengið átta fulltrúa ef mælingar í könnunum hefðu reynst niðurstöður kosninganna.

Kjörsókn á landsvísu var 66,8% sem er nokkru meira en í sveitarstjórnarkosningunum 2022 þegar 62,2% kusu.

Í Reykjavík jókst kjörsókn úr 61,1% í 66,3%.

Í stærri sveitarfélögum var kjörsókn áberandi verst í Reykjanesbæ, 51,6%, sem er þó nokkur aukning frá 2022 þegar 47,4% kusu.

Óhætt að segja að Sjálfstæðisflokkurinn annars vegar og Miðflokkurinn hins vegar geti best unað við niðurstöður kosinganna.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk níu fulltrúa kjörna í Reykjavík og er með alla valdaþræði í hendi sér og getur myndað meirihluta með Miðflokknum sem fékk þrjá fulltrúa. Þá eru Sjálfstæðismenn með hreinan meirihluta í Kópavogi, Garðabæ, og Seltjarnarnesi og eru auk þess sem flokkurinn er stærstur í Hafnarfirði, Reykjanesbæ, Akureyri og Múlaþingi.

Samfylkingin galt afhroð í Reykjavík og Hafnarfirði.

Þegar litið er á afdrif flokkanna á landsvísu getur þó reynst þrautin þyngri að telja nákvæmlega saman fulltrúa flokka og framboða um landið, en hér má sjá stutta samantekt.

Góðan daginn og velkomin á þessa fréttavakt!

Eftir spennandi og viðburðaríka kosninganótt munum við fara nánar yfir úrslitin og fylgjast með fyrstu þreifingum til myndunar meirihluta í sveitarstjórnum landsins.

Hér má lesa fréttavakt næturinnar þar sem úrslitin voru tekin fyrir í beinni útsendingu.

#beggja #hildur #horfir #til #átta


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-17-hildur-horfir-til-beggja-atta-475665

📰 Aðrar fréttir

Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Sam­þykktu að slíta kjara­samningum - Vísir
„Ég var með fund í stjórn VR þar sem var einróma samþykkt að slíta kjarasamningum á morgun,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR í samtali við Vísi....
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Niður­rif hafið á Laugasól - Vísir
Samkvæmt svörum frá Reykjavíkurborg er unnið að gerð deiliskipulags á grundvelli hönnunarforsendna fyrir nýjan leikskóla. Ekki liggi þó enn fyrir enda...
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
📅 07.10.2026 👁️ 0
Drap Christian Zedig með einu hnefahöggi – dæmdur í aðeins eins árs fangelsi
Nkumba Ludovic Tshiembe, 31 árs, hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi fyrir árásina á sænska lögreglumanninn og tveggja barna föðurinn Christian Zed...
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
📅 07.10.2026 👁️ 0
Ummæli Trump um árásir á tvær bandarískar borgir sögð landráð - Hvíta húsið segir viðbrögðin bjánaleg
Ummæli Donald Trump Bandaríkjaforseta um árásir Írans á tvær borgir í Kaliforníu hafa vakið hörð viðbrögð og þá sérstaklega hjá pólitískum andstæðingu...
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
📅 07.10.2026 👁️ 0
Christa Pike 'angry and confused' after failed execution, lawyers say
Lawyers say the convicted killer was surprised to have survived and remained "shackled" to her hospital bed.
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ - Vísir
„Þá mátt ekki sýna forsetaembættinu vanvirðingu,“ sagði Trump við blaðamenn í Hvíta húsinu í dag. Forsetinn var spurður út í ummæli hans um að ef Demó...
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
📅 07.10.2026 👁️ 0
Gervigreind mun bæði útrýma og skapa milljónir starfa
Erik Brynjolfsson er einn kunnasti hagfræðingur Bandaríkjanna þegar kemur að mati á efnahags- og félagslegum áhrifum gervigreindar á vinnumarkað. Hann...
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Fangelsi undir Vatna­jökli - Vísir
Nýi leikvangurinn var gefinn út í gær, þriðjudag, samhliða uppfærslu á leiknum þar sem nýtt efni var kynnt til leiks. Overwatch er fjölspilunarleikur ...
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ - Vísir
„Það eru auðvitað vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk,“ segir Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, í samta...
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hvað eiga danskir tómatar og íslensk svefntækni sameiginlegt?
Þróun gervigreindarlíkana fleygir fram á ógnarhraða. Árið 2023 töldu tæplega 3.000 sérfræðingar að það gæti tekið allt að 27 ár fyrir gervigreind að l...
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ógnarástand um borð í flugi Icelandair þegar æði rann á íslenskan taugasálfræðing
Maður sem ákærður hefur verið fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn lögum um loftferðir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum...
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ljósa­staurar bilaðir víða í Reykja­vík - Vísir
Meðal annars hafa borist ábendingar um að slökkt sé á ljósastaurum á Sæbraut og í Breiðholti. Frá Vegagerðinni, sem heldur utan um ljósastaura við sto...
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
📅 07.10.2026 👁️ 1
Kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á Hringbraut
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli við JL-húsið við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu. Unnið er a...
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
📅 07.10.2026 👁️ 0
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi
Eldur kviknaði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í JL-húsinu við enda Hringbrautar. Talsverður eldur kom upp og mikill reykur myndaðist í framhaldinu...
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ræst út vegna logandi rafmagnshlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls - Vísir
Að sögn varðstjóra slökkviliðs gekk vel að slökkva eldinn og hann hefur ekki breiðst út. Nú stendur reykræsting yfir. Slökkviliðið hafi verið ræst út ...
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bilun í ljósastaurum víða um borgina
Bilun er í ljósastaurum víða um borgina. Vegagerðin segir að tilkynnt hafi verið um bilanir á Sæbraut og Miklubraut og að unnið sé að viðgerðum. Vegag...
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
📅 07.10.2026 👁️ 1
Israelis mourn 7 October attack victims as Gaza lies in ruins three years on
Memorial events have taken place in Israel on the third anniversary of the Hamas-led attack that sparked the devastating Gaza war.
Engin brottfararstöð í desember
📅 07.10.2026 👁️ 1
Engin brottfararstöð í desember
Ljóst er að opnun brottfararstöðvar fyrir útlendinga í Reykjanesbæ tefst um að minnsta kosti nokkra mánuði. Hana átti að opna eftir minna en tvo mánuð...
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
„Það er smá töffari í mér“ - Vísir
Sigríður Margrét er fimmtíu ára gömul og sækir tískuinnblásturinn meðal annars til kvenna í kringum sig. Sömuleiðis er hún dugleg að lesa tískutímarit...
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ - Vísir
„Við söfnuðum yfir 100 undirskriftum og fundum hentugt húsnæði í Reykjavík til að opna kjörstað fyrir komandi kosningar í Serbíu, eins og kosningalög ...
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
📅 07.10.2026 👁️ 2
Hannes segir þetta ástæðuna fyrir stuðningi við Hamas – „Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, er harðlega gagnrýndur fyrir að segja að Hamas njóti stuðnings á Vesturlöndum þar...
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
📅 07.10.2026 👁️ 2
„Þetta minnti okkur á upphaf stríðsins“
Í dag eru þrjú ár síðan Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Íbúar Gaza vöknuðu við árásir snemma morguns sem m...
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
📅 07.10.2026 👁️ 2
Vilja framtíðarsýn í skólamálum og kalla eftir samtali
Kennarasamband Íslands kynnti í dag tillögur að stefnumótun til framtíðar í menntamálum, Blásum byr í seglin, og þau verkefni sem ráðast þarf í til að...
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
📅 07.10.2026 👁️ 2
Loðinn rummungur fer ránshendi um Vesturbæinn
Kötturinn Dreki fer ránshendi um Vesturbæinn í Reykjavík, tekur ýmislegt ófrjálsri hendi - en sinnir líka hreinsunarstörfum.„Hann er þjófóttur kisi. H...
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fangaði sólar­upp­rás á Mars - Vísir
Könnunarfarið Curiosity, sem er statt á yfirborði Mars, fangaði í ágúst sólarupprás á rauðu plánetunni svokölluðu. Það var þegar farið var notað til a...
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni - Vísir
Högni Alvar Harðarson Önnuson er formaður Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, en hann útskýrir í samtali við Vísi að félagið bjóði um þessar...
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fraudster jailed over multi-million pound PPE scam
Craig Morris was sentenced to three years and nine months in prison at Northampton Crown Court.
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara - Vísir
Í auglýsingu í Lögbirtingablaði dagsins segir að félagið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta þann 3. júní síðastliðinn og skiptum lokið þann 23. sep...
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina
Eigandi lóðar í frístundabyggð í Grímsnes- og Grafningshreppi hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann kærði breytingu á deiliskipulag fyrir byggðina s...
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
📅 07.10.2026 👁️ 2
Spanish pensioner whose eviction sparked nationwide protests dies, union says
Maricarmen Abascal, 87, was forcibly removed on a stretcher from her apartment of more than 70 years in September.
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
📅 07.10.2026 👁️ 2
Telur orð Seðlabankastjóra fullkomlega óábyrg
Fyrstu umræðu um áðurnefnd húsaleigulög ríkisstjórnarinnar, sem oft eru kölluð leigubremsa, var fram haldið á Alþingi í dag en stjórnarandstaðan vildi...
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
📅 07.10.2026 👁️ 2
Man to face trial for attempted murder of British child in Alps park attack
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
Man charged with 13 attempted murders including British child
📅 07.10.2026 👁️ 2
Man charged with 13 attempted murders including British child
Abdalmasih Hanoun, accused of carrying out an attack at a French park in 2023, is set to face trial.
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
„Við erum að gefa boltann upp“ - Vísir
Magnús Þór var framsögumaður á blaðamannafundi Kennarasambandsins sem fór fram í Réttarholtsskóla í dag. Þar kynnti hann stefnumótun og áherslur samba...
Greipur skemmtir í Sykursalnum
📅 07.10.2026 👁️ 2
Greipur skemmtir í Sykursalnum
Grínistinn Greipur Hjaltason verður með uppistand í Sykursalnum, Grósku, á fimmtudagskvöld og hefst sýningin kl. 21. Yfirskrift uppistandsins er „Grei...
Þétta sam­starfið í út­norðri - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Þétta sam­starfið í út­norðri - Vísir
Þetta kom fram á blaðamannafundi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Jens Frederik Nielsen, formanns grænlensku landsstjórnarinnar, og Beini Joh...
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Kom á óvart að Miðflokkurinn studdi ekki brottfararstöðina
📅 07.10.2026 👁️ 2
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Kom á óvart að Miðflokkurinn studdi ekki brottfararstöðina
Með því að koma ekki upp brottfararstöð fyrir brottvísaða útlendingar hafa Íslendingar í raun ekki staðið við Schengen skuldbindingu í um áratug. Í lj...
Nýsköpunar- og frumkvöðlasetrið Arctell Sandvik opnað
📅 07.10.2026 👁️ 2
Nýsköpunar- og frumkvöðlasetrið Arctell Sandvik opnað
Nýsköpunar- og þekkingarsetrið Arctell Sandvik var formlega opnað í dag. Setrinu er ætlað að vera vettvangur fyrir nýsköpun og frumkvöðlastarf, og er ...
Sólveig greindist með brjóstakrabbamein: „Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast“
📅 07.10.2026 👁️ 3
Sólveig greindist með brjóstakrabbamein: „Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast“
Sólveig Jónsdóttir greindist með brjóstakrabbamein í maí 2026 eftir að hafa fundið fyrirferð í brjóstinu fyrr á árinu. Hún segist hafa upplifað alls k...
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Bókun 35 – Höfum við efni á meiri óvissu og veikari samkeppnisstöðu?
📅 07.10.2026 👁️ 3
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Bókun 35 – Höfum við efni á meiri óvissu og veikari samkeppnisstöðu?
Ísland þarf meiri erlenda fjárfestingu, fleiri alþjóðleg fyrirtæki og fleiri vel launuð þekkingarstörf. Við þurfum að lækka fjármagnskostnað og styrkj...
Pútín skerðir frelsi ungra karlmanna – Talið vera undanfari herkvaðningar
📅 07.10.2026 👁️ 3
Pútín skerðir frelsi ungra karlmanna – Talið vera undanfari herkvaðningar
Rússar óttast aðra stóra herkvaðningu í landinu eftir að Vladímír Pútín forseti skerti frelsi ungra manna fyrir skemmstu. Ungir menn mega nú meðal ann...
Orðið skýrt hvenær ökumenn undir áhrifum lyfseðilsskyldra lyfja mega stjórna ökutæki
📅 07.10.2026 👁️ 3
Orðið skýrt hvenær ökumenn undir áhrifum lyfseðilsskyldra lyfja mega stjórna ökutæki
Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu lyfja tók gildi í dag.Neysla lyfja ökumanna verður að vera í samræmi við fyrirmæli læknis o...
Telur uppsögn kjarasamninga geta leitt til langrar deilu
📅 07.10.2026 👁️ 3
Telur uppsögn kjarasamninga geta leitt til langrar deilu
Halla Gunnarsdóttir óttast að kjarasamningum verði sagt upp á morgun. Ekkert samtal sé í gangi við Samtök atvinnulífsins. Lögð hafi verið fram lausn f...
Conservatives united behind Kemi Badenoch - but party still needs to win over voters
📅 07.10.2026 👁️ 3
Conservatives united behind Kemi Badenoch - but party still needs to win over voters
Kemi Badenoch has the support of her party but the Tories still trail Labour and Reform in opinion polls.
Rússar segja enga hættu á faraldri – Mongólía eflir landamæraeftirlit
📅 07.10.2026 👁️ 3
Rússar segja enga hættu á faraldri – Mongólía eflir landamæraeftirlit
Rússneska lýðheilsustofnunin, Rospotrebnadzor, segir enga hættu á að faraldur brjótist út í landinu. Þetta eru viðbrögð við fréttum af dauðsfalli 28 á...
„Við erum til­búin að skoða lengingu skóla­ársins“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
„Við erum til­búin að skoða lengingu skóla­ársins“ - Vísir
Í vor fór fram töluverð umræða um fjölda skóladaga á Íslandi eftir að Menntamálaráðuneytið birti tilkynningu þar sem fram kom að kennsludagar væru sty...
Árekstur og bílvelta á Vesturlandsvegi
📅 07.10.2026 👁️ 3
Árekstur og bílvelta á Vesturlandsvegi
Árekstur varð á Vesturlandsvegi við Bauhaus á fjórða tímanum í dag. Einn bíll valt út af veginum.Hildur Rún Björnsdóttir, lögreglufulltrúi lögreglustö...
Bein út­sending: Blaða­manna­fundur Krist­rúnar, Beinis og Jens Frederik - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 3
Bein út­sending: Blaða­manna­fundur Krist­rúnar, Beinis og Jens Frederik - Vísir
Hægt verður að fylgjast með blaðamannafundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að ríkisstjórnaroddv...
Rannsókn á leikfangabyssum lokið og ákvörðun um saksókn fram undan
📅 07.10.2026 👁️ 3
Rannsókn á leikfangabyssum lokið og ákvörðun um saksókn fram undan
Rannsókn er lokið vegna gruns um vopnalagabrot um verslunarmannahelgina á Akureyri. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort fimm menn, sem reyndust h...