Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir það samsæriskenningu að með því að fækka varaforsetum ASÍ þá sé verið að jaðarsetja sjónarmið hópa innan sambandsins líkt og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur haldið fram. Líkt og fjallað var um í morgun telur Sólveig Anna að Halla ætli sér að sölsa undir sig ASÍ á þingi sambandsins sem hefst á morgun. Sjá einnig: Segir að svona ætli Halla og VR að taka ASÍ yfir
Halla: „Ótrúlega undarlegt að lesa samsæriskenningar“