Hannah lést ásamt tveimur íslenskum ungmennum, Arndísi Höllu Guðlaugsdóttur og Benjamín Guðmundssyni, í umferðarslysi á Krýsuvíkurvegi hinn 31. ágúst.
Þjóðkirkjan greinir frá því að minningar- og þakkarstundin haldin í Áskirkju laugardaginn 12. september klukkan 16.
Séra Ása Björk Ólafsdóttir muni sjá um minningarstundina sem fari fram á ensku en Hannah var frá Írlandi og búsett hér á landi. Hannah hefði orðið nítján ára síðar í mánuðinum.
Foreldrar hennar hafa lagt leið sína til landsins eftir að hún lést en þau komu því á framfæri við fréttastofu að hún hefði verið afar hamingjusöm á Íslandi og spennt fyrir því að dvelja hér.