Karlmaður um þrítugt er í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa orðið sænskum manni að bana á Íslandsbryggju í Kaupmannahöfn á þriðjudag. Hann er grunaður um að hafa veitt manninum þungt hnefahögg í háls og höfuð með þeim afleiðingum að hann fékk heilablæðingu og brot á hryggjarlið.
Samkvæmt DR stendur hann frammi fyrir ákæru fyrir líkamsárás en ekki manndráp.
Lögregla staðfesti í gær að sænski maðurinn væri látinn. Hinn grunaði gaf sig sjálfur fram á lögreglustöð í gær eftir að lögregla lýsti eftir honum, að því er danska ríkisútvarpið greinir frá, en neitar sök.
Hann hefur áður verið dæmdur fyrir líkamsárás og kynferðisbrot. Árásin varð á viðburði þar sem sýnt var frá leik á heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu á risaskjá.
Danskir fjölmiðlar herma að tildrög árásarinnar hafi verið stimpingar milli tveggja hópa. Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Danmerkur segist sár og reiður yfir atvikinu. Hann vonist eftir þungri en réttlátri refsingu.