Guðmundur Daði Rúnarsson hefur verið ráðinn forstjóri innviðafélagsins Ganga og brúar ohf. Fyrirtækið á að fjármagna framkvæmdir á samgöngumannvirkjum og taka að sér uppbyggingu innviða.
Guðmundur Daði var áður framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli og vann að uppbyggingu og framkvæmdum flugvallarins í áratug.