Slökkviliðið er eftirsóttur vinnustaður en til að komast í það þarf að þreyta inntökupróf.
„Þetta ferli samanstendur af hlaupaprófi, sundprófi og inntökudegi þar sem við förum í gegnum styrktar- og þrekæfingar, innilokunaræfingur, hæðaræfingar þar sem við förum upp í körfubíl og síðan það sem við köllum verklegar æfingar,“ segir Guðný Elísabet Ingadóttir. mannauðsstjóri í Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Hún bætir við að þau séu ekki bara að leita að fólki sem er líkamlega sterkt heldur einnig með góðan andlegan styrk.
Starfið er eftirsótt, síðast sóttu 160 um en 12 voru ráðnir eftir inntökuferlið. Næsta inntökupróf er áætlað í lok september.
En kæmist þú í gegnum prófið? Kastljós kynnti sér störf slökkviliðsins og lét reyna á nokkra þætti inntökuprófsins.