Umhverfis- og orkustofnun áformar að synja Akureyrarbæ og Norðurorku um að skilgreina innri Eyjafjörð sem síður viðkvæmt svæði þegar kemur að fráveitu og skólphreinsun. Þetta liggur fyrir eftir niðurstöður umhverfisvöktunar á svæðinu. Þær benda til þess að botndýralíf þar sé undir álagi. Niðurstöður vöktunarinnar komu Norðurorku ekki á óvart.
„Auðvitað reiknuðum við með lífrænu álagi en kannski ekki eins miklu og kom fram í þessari rannsókn,“ segir Stella Árnadóttir, umhverfis og öryggisstjóri Norðurorku.
Gæti þurft annars stigs hreinsun
Ef Eyjafjörðurinn fær ekki þessa skilgreiningu þarf að ráðast í annars stigs hreinsun.
„Þá eru í rauninni þessu lífrænu efni þau eru hreinsuð betur frá. Fyrsta stigið er í rauninni að þá er ákveðin lágmarks hreinsun á fráveituvatninu og sigtun. Önnur stigs hreinsun, þá ertu kominn í meiri hreinsun. Nærð meira af lífrænum efnum út úr fráveitunni,“ segir Stella.
Skólphreinsistöðin á Akureyri var upphaflega tekin í notkun 2020 og byggð með það í huga að þar gæti farið fram annars stigs hreinsun. Það er þó ekki hafið en slíkar breytingar eru kostnaðarsamar. Örlítil aukning hefur verið milli ára á rusli sem er sigtað frá fráveituvatni.
„En þetta er svona, það er að jafnaði um 45-47 tonn sem við erum að safna af rusli, það er svona frekar aukning heldur en minnkun.“