„Viðbrögðin okkar eru að fara yfir dóminn og við í rauninni tjáum okkur ekkert um niðurstöðu dómsins,“ segir Eyþór Harðarson, formaður bæjarráðs Vestmannaeyjabæjar, í samtali við fréttastofu.
Það var í nóvember 2023 þegar fiskveiðiskipið Huginn VE-55 var á leið til hafnar í Vestmannaeyjum. Á siglingunni hafði skipið misst niður akkeri sitt sem dróst með hafnbotninum án þess að skipverjar tækju eftir því. Akkerið kræktist í vatnslögn sem liggur til Vestmannaeyja og ljósleiðara með þeim afleiðingum að ljósleiðarinn fór í sundur og vatnslögnin skemmdist.
Sjá nánar: Skemmd neysluvatnslögn í Eyjum
Vestmannaeyjabær og Ljósleiðari ehf. höfðuðu mál gegn Vinnslustöðinni hf., sem á útgerðarfélagið Hugin ehf., sem á skipið Hugin VE-55. Tryggingafélagið Vís er vátryggjandi skipsins. Kröfðust stefnendurnir tæpra tveggja milljarða króna í bætur.
Krafan byggði meðal annars á því að það teljist fullsannað að tjóninu hafi verið valdið af stórfelldu gáleysi og að félögin þrjú beri fulla ábyrgð gagnvart íbúum Vestmannaeyja.
Í dómnum, sem er sextíu blaðsíður, er málsatvikum lýst og rökum dómsins fyrir sýknu lýst. Taldi dómurinn að ekki væri hægt að fallast á málsástæður Vestmannaeyjabæjar og Ljósleiðara.
Eyþór segist eiga fund með lögmönnum bæjarins í vikunni þar sem staðan verður metin og ákvörðun tekin hvort bærinn áfrýji dómnum. Hann vill ekki tjá sig að öðru leyti um málið og vísar í tilkynningu sem birt var á heimasíðu Vestmannaeyja í gær.