Frestar tónleikum vegna veikinda
Þar hugðist hann ...
Zayn Malik hefur frestað sérstökum tónleikum í Kingston í Bretlandi vegna veikinda, aðeins skömmu áður en þeir áttu að fara fram.
Þar hugðist hann kynna ný lög af væntanlegri plötu sinni, KONNAKOL, og eiga samtal við aðdáendur.
Í tilkynningu frá tónleikahaldara kom fram að unnið væri að því að finna nýja dagsetningu.
Aðdáendur vonsviknir
Margir aðdáendur lýstu vonbrigðum sínum á samfélagsmiðlum en sumir sögðust þegar vera á leið til London eða hafa varið umtalsverðum fjárhæðum í ferðina. Jafnframt sendu þeir söngvaranum batakveðjur.
Frestunin kemur á sama tíma og Malik undirbýr útgáfu nýrrar plötu 17. apríl og stærstu sólótónleikaferð ferils síns.
Malik hefur áður greint opinskátt frá kvíða og heilsuvanda sem haft hefur áhrif á tónleikahald hans. Hann hefur áður þurft að aflýsa tónleikum með skömmum fyrirvara á undanförnum árum.
Daily Mail