Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, segir það hafa verið frágengið að Valdimar yrði áfram bæjarstjóri í Hafnarfirði. Orri segist sjálfur hafa lýst yfir áhuga á að taka við embættinu og að þeir Valdimar hafi rætt mögulegar nálganir á fundi á mánudaginn.
„Það endaði þannig á mánudagskvöldið eftir að ég hafði boðið upp á ýmsa kosti, meðal annars að fá faglegan bæjarstjóra, að þá féllumst við á að hann yrði bæjarstjóri í fjögur ár og það var handsalað.“
Framsóknarmenn í Hafnarfirði hafna fullyrðingum um trúnaðarbrest eftir að Sjálfstæðismenn slitu viðræðum þegar þeir urðu þess áskynja að Framsókn hefði líka rætt við Samfylkingu.
Orri segir leiðinlegt þegar ekki ríki traust á milli manna, hann og Valdimar hafi unnið lengi saman og því hafi þetta komið honum á óvart.