Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir óhjákvæmilegt að töluverðar breytingar verði á stjórn sambandsins eftir hverjar sveitarstjórnarkosningar. Fréttastofa ræddi við hann á Reyðarfirði.
„Núverandi stjórn situr náttúrulega fram í september. Þá koma sveitarfélögin saman og halda stórt landsþing á Akureyri seinni partinn í september. Þar mótum við stefnu fyrir næstu fjögur árin,“ segir Jón.
„Stjórnin endurspeglar svolítið niðurstöður kosninga á landsvísu eftir því hvað framboðin eiga marga fulltrúa í sveitarstjórnum undir hreinum listum.“