Flugvél sprakk í flugtaki

Fimmtán létust þegar fraktflugvél á vegum UPS hrapaði skömmu eftir flugtak í Louisville í nóvember á síðasta ári. Nýtt myndskeið sem flugmálayfirvöld birtu í gær sýnir augnablikið þegar hreyfill vélarinnar rifnaði frá skrokknum í flugtaki.
Á upptökunni sést flugvélin aka hratt eftir flugbrautinni áður en hún lyftist frá jörðu. Skömmu síðar verður sprenging og annar hreyfillinn þeytist frá væng vélarinnar. Vélin heldur áfram flugi út úr myndrammanum, en fyrri upptökur frá vettvangi sýndu hana síðan hrapa skammt frá hjólbarðaverslun.
Flugvélin var á leið til Hawaii þegar slysið varð. Alls létust fimmtán manns í slysinu.
Samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum hefur rannsókn leitt í ljós að sprunga fannst í burðarhluta sem tengir hreyfilinn við væng flugvélarinnar. Talið er að bilunin hafi átt þátt í slysinu.
Í kjölfar slyssins hefur UPS tekið allar McDonnell Douglas MD-11-flugvélar sínar úr notkun. Fraktfélagið FedEx mun hins vegar enn nota sambærilegar vélar samkvæmt erlendum miðlum.
Lokaskýrsla flugmálayfirvalda um slysið hefur ekki enn verið birt, en búist er við að hún verði gefin út síðar á þessu ári.