Flugumaður afhjúpar sig

Hallur Hallsson skrifar:
Plan Kristrúnar Mjallar Frostadóttur forsætisráðherra birtist þjóðinni ekki í samtali við þjóð sína heldur samtölum á erlendum vettvangi nú síðast á Rest is Politics. Útþensla Esb til austurs og vesturs eru aflvakar stefnumótunar ríkisstjórnar Kristrúnar. Innlimun Íslands og Grænlands í Esb er ríkisstefna Kristrúnar Mjallar og Þorgerðar Katrínar. Þess vegna er allur þessir flýtir, þess vegna allur þessi æðibunugangur, þess vegna þjóðaratkvæði 29. ágúst. Þær eru báðar í bjölluati. Rökræða þjóðar um kosti og galla ásamt kosningu 2027 var vikið til hliðar. Það varð að esba þjóðina í sumarfríinu. Svívirðileg er framganga þeirra beggja.
Innlimun Íslands löngu ákveðin
Innlimun Íslands er löngu ákveðin. Hér er dauðans alvara á ferð. Þær stöllur eru Gissur jarl okkar tíðar. Gissur jarl var flugumaður Noregskonungs. Gissur jarl hlýddi skipun Hákonar gamla Noregskonungs í bandalagi við Vatikanið í Rómaborg og fór fyrir vígaflokki í Reykholt á haustjafndægrum 1241. Snorri Sturluson var veginn með útlendri tilskipun, merkasti Íslendingur allra tíma færði þjóð sinni Heimskringlu og norræna goðafræði söguþjóðarinnar. Af hverju fær þjóðin ekki að vita hvað vélað var á fundum í Brüssel. Þær hafa svarið drengskapareið að stjórnarskrá lýðveldisins Ísland:
"Ég undirskrifuð, sem kosin er þingmaður til Alþingis Íslendinga, heiti því, að viðlögðum drengskap mínum og heiðri, að halda stjórnarskrá landsins.“
Gjörðir þeirra þeirra verða að hafa afleiðingar. Landráðakafli hegningarlaga er skýr:
Grein 86:
„Hver, sem sekur gerist um verknað, sem miðar að því, að reynt verði með ... svikum að ráða íslenska ríkið eða hluta þess undir erlend yfirráð ... skal sæta fangelsi ekki skemur en 4 ár eða ævilangt.“
Flugumenn útlends valds
Kristrún og Þorgerður eru flugumenn útlends valds. Þær véla með einveldi embættismanna í Brüssel gegn þjóð sinni ekki bara gegn Íslandi heldur líka Grænlandi vegna Trump! Orðræða Donald Trump Bandaríkjaforseta um að Bandaríkin eignist Grænland er sögð “...risastórt vandamál sem valdi Íslendingum áhyggjum ... Nú er frábær tími fyrir Ísland að ganga inn í Evrópusambandið.“
Kaupmannahöfn og Brüssel ætla að ráða Íslandi og Grænlandi. Þær ætla að kasta varnarsamningnum frá 1951 sem tryggir herlaust Ísland. Frumvarp 114/2025 er váboði að frumkvæði Brüssel til undirbúnings styrjöld. Ríkislögreglustjóri á stríðstímum fær alræðisvald yfir 18-65 ára konum og körlum vegna Esb/Rússó styrjaldar.
Þetta er ekki hægt að skálda. Þetta er sjokkerandi og hættulegt. Ég hef skýrt frá ummælum Martin Frick ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytis Lichtenstein sem sagði við Ivan Kaufmann vélfagseiganda í ágúst 2025:“ Þorgerður nýtur „... Absólút Verndar – Absolute Protection von der Leyen.“ Fingraför von der Leyen blasa við. Váfugl vomir yfir Íslandi.
