Lögreglan á Suðurlandi fékk tilkynningu um flugslys sunnan Mýrdalsjökuls um klukkan ellefu í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir voru kallaðar út til að aðstoða við leit og björgun.
Einum manni á svifvæng hafði hlekkst þar á og hann orðið viðskila við samferðamenn, segir í tilkynningu lögreglu.
Maðurinn er fundinn og var hífður um borð í þyrlu sem flytur hann til skoðunar og aðhlynningar á bráðamóttöku Landspítalans.
Slysið er til rannsóknar.
Fréttin var uppfærð.