Að minnsta kosti fjórir voru drepnir í stórfelldum árásum Úkraínu á Rússland í nótt.
Úkraínuher sendi hátt í 600 dróna að skotmörkum vítt og breytt um landið, allt að nágrenni höfuðborgarinnar Moskvu. Þar voru 3 drepnir og einn til viðbótar í landamærahéraðinu Belgorod.
Þessar aðgerðir koma í kjölfar þungra og mannskæðra árása Rússa á Úkraínu síðustu daga og vikur.
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti sagði í samfélagmiðlafærslu í morgun að þetta svar væri fyllilega réttlætanlegt. Skilaboðin til Rússa væru að nú þyrfti að ljúka stríðinu sem hefur staðið í rúm fjögur ár, frá allsherjarinnrás Rússa í febrúar 2022.