„Ísland gæti orðið næsta aðildarríki ESB – en ekki ef stór útgerðarfyrirtæki fá sínu framgengt.“ Svona hljóðar fyrirsögn umfjöllunar hollenska fjölmiðilsins Follow the Money um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við ESB.
Þar dregur fjölmiðillinn fram líkindi með röksemdafærslum og bakhjörlum nei-hreyfingarinnar og Brexit-hreyfingarinnar á sínum tíma.
Eins og nafn fjölmiðilsins, Follow the Money, eða Eltum peningana snarað á íslensku, gefur til kynna sérhæfir hann sig í umfjöllunum um fjármálatengsl. Fyrir þessa umfjöllun skoðaði fjölmiðillinn gagnasöfn um fjármögnun þinghópa á Evrópuþinginu og notaði svo fyrirtækjaskrá Skattsins til að rekja eignarhald íslenskra fyrirtækja á lista yfir styrktaraðila.
Rannsókn Follow the Money leiddi í ljós að íslensk fyrirtæki styrktu þinghópa og hugveitur sem fjölmiðillinn kallar Evróputortryggin (e. Eurosceptic), og íhaldssamar Evrópuhreyfingar: Bandalag íhaldsmanna og umbótasinna í Evrópu (ACRE, nú ECR), og hugveitu þess, New Direction, og Bandalag fyrir beint lýðræði í Evrópu (ADDE) og Stofnun fyrir beint lýðræði í Evrópu (IDDE).
Þessi sömu íslensku fyrirtæki, eða aðstandendur þeirra, hafa lýst andstöðu við aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Almenna bókafélagið og aðstandendur þess styrktu Brexit-hreyfinguna umtalsvert, bæði fyrir og eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Brexit.
Almenna bókafélagið, hluthafar og stjórnarmenn þess, þeirra á meðal fyrirtæki í eigu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, styrktu hugveitur hlynntar Brexit alls um tæplega 50 þúsund evrur á árunum 2014 til 2017. Það jafngildir tæplega 7 milljónum íslenskra króna á gengi dagsins í dag.
Merki Almenna bókafélagsins var á auglýsingu fyrir fyrirlestur dr. Carls Baudenbacher um Ísland og ESB. Baudenbacher er fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins og telur hagsmunum Íslands betur borgið utan ESB.
Þá lögðu tvö fyrirtæki í meirihlutaeigu Hannesar Hólmsteins, sem er ötull talsmaður nei-hreyfingarinnar, IDDE hvor sínar 10 þúsund evrurnar til í aðdraganda Brexit-atkvæðagreiðslunnar 2015.
Þrjú íslensk sjávarútvegsfyrirtæki styrktu ACRE 2017
Í umfjöllun Follow the Money segir að Brim og Ísfélag Vestmannaeyja hafi styrkt ACRE og New Direction um hæstu mögulegu fjárhæð, en ekki er tekið fram hver upphæðin er eða hvenær styrkurinn var veittur.
Þegar gagnagrunnur Follow the Money er skoðaður má sjá að Ísfélagið styrkti hugveituna New Direction um 12 þúsund evrur og Brim sömu hugveitu um 5 þúsund evrur.
Báðir styrkirnir voru veittir 2017, eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Brexit 2015 en á meðan á samningaviðræðum Breta við ESB um útgöngu stóð. Bretar gengu loks formlega úr Evrópusambandinu 2020.
Þegar gagnagrunnurinn er skoðaður má einnig sjá að Hvalur hf. styrkti New Direction um 5 þúsund evrur sama ár, 2017.
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi eru mótfallin aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Í umfjöllun Follow the Money er sérstaklega tekið fram að ekki sé hægt að rekja fjárframlög til já- og nei-hreyfinganna hérlendis vegna glufa í lögum um fjármögnun kosningabaráttu, líkt og Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, hefur fjallað um.