Erlendir fjölmiðlar segja ástandið vera einna verst í Hubei-héraði í miðju landsins þar sem ellefu hafa látist og eins er saknað. Í Guangxi-héraði, sem er að finna sunnar í landinu, hafa fjórir látist og átta er enn saknað.
Xi Jinping Kínaforseti hefur fyrirskipað öllum viðbragðsaðilum að aðstoða við björgunarstörf. Tugþúsundum manna hefur verið gert að yfirgefa heimili sín í borginni Nanning eftir að stífla brast í bænum.
Óveðrið hefur gengið yfir landið í kjölfar þess að fellibylurinn Maysak skall á suðurhluta landsins um helgina.
Kínverjar bíða þess nú að fellibylurinn Bavi, sem sækir nú í sig veðri í Kyrrahafi, komi á land í suðausturhluta landsins.