Árekstur varð á Reykjanesbraut við Hnoðraholt í Garðabæ á fimmta tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu skullu fimm bílar saman.
Einn sjúkrabíll og dælubíll voru sendir á vettvang. Sex manns voru fluttir á slysadeild til skoðunar.
Dælubíll var sendur á vettvang til þess að hreinsa brak af brautinni. Fjarlægja þurfti tvo bíla sem voru ekki ökufærir. Samkvæmt Guðjóni Ingasyni, varðstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, varð einnig minniháttar olíuleki.
Fréttin hefur verið uppfærð með nánari upplýsingum.