Fegurðarskyn á sér „djúpar rætur í sálarlífi okkar“
Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði, segir fegurðarskyn fólks byggja á gildismati þess og að því sé ekki auðvelt að breyta. Við opnun Vaðölduvers sagði Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að við þyrftum að „laga fegurðarskynið okkar að orkuskiptabyltingunni“.
„Þó að við séum fljót að leggja mat á umhverfi okkar, þá þýðir það ekki að þetta sé yfirborðslegt og einhver léttúð. Þar að baki geta verið ofboðslega djúpar ástæður,“ segir Páll Jakob Líndal, doktor í umhverfissálfræði. Heimildin ræddi við hann um fegurðarskyn fólks gagnvart umhverfi og náttúru.
Í september var vindorkuver við Vaðöldu opnað við hátíðlega athöfn þar sem Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ávarpaði meðal annars gesti. Í ávarpinu sagði ráðherrann að honum leiddist „trumpísk“ orðræða andstæðinga vindorkuvera og benti á að vindmyllur væru táknmynd orkuskiptanna. „Við þurfum líka bara svolítið að læra að meta þetta og laga fegurðarskynið okkar að orkuskiptabyltingunni,“ sagði Jóhann Páll um málið.
Páll segir að fegurðarskyn sé flókið fyrirbæri og sem stendur skilji fræðin það ekki til fulls. „Þetta er upplifun og ef við horfum á það, þá er það samsett fyrirbæri hvernig við upplifum umhverfi okkar. Það getur verið tilfinningaleg …