Leigubíl finnst brunninn við Reynisvatn og undir stýri eru illa farnar líkamsleifar bílstjórans. Fljótlega kemur í ljós að maðurinn var myrtur áður en kveikt var í bílnum. Rannsóknarlögreglumaðurinn Hlöðver Hlöðversson sér um rannsókn málsins. Hún leiðir að gömlu mannshvarfsmáli og hópi manna sem tengdust rekstri nektardansstaða um síðustu aldamót.
Nýtti sér reynslu úr leigubílaakstri í spennusögu og punktaði hjá sér milli túra