Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, harmar ákvörðun Bandaríkjaforseta um að draga úr viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi. Rússar gerðu í gær eina stærstu árás sína á orkuinnviði í Úkraínu síðan innrásin hófst í febrúar 2022.
Zelensky skrifar á X að stuðningur Bandaríkjanna gæti skipt sköpum til að draga úr árásum Rússa á orkuinnviði.
Forsetatilskipun sem Donald Trump Bandaríkjaforseti skrifaði undir í gær felldi úr gildi viðskiptaþvinganir ríkisins gegn Rússlandi, sem beindust helst gegn orku- og varnarmálageirum landsins, skuggaflotanum svokallaða, Vladimír Pútín Rússlandsforseta og öðrum háttsettum embættismönnum.
Aðeins vika er síðan Trump gerði samkomulag við Pútín um kaup á talsverðu magni af dísilolíu næstu þrjá mánuði.
Zelensky skrifaði á X í morgun að markmið Rússa væri að valda orkukrísu í Úkraínu. Árásin í gær hafi beinst að yfir fimmtán orkuverum og flutningskerfum. Unnið sé að því að auka orkuframleiðslu á ný.
„Rússar hafa lagt meiri þunga í aðgerðir sínar gegn orkuframleiðslu og eru að reyna að klára birgðir okkar og takmarka möguleika til viðgerða. Á milli sjö í gærkvöldi og sjö í morgun var beitt hvorki meira né minna en 320 Shahed-drónum, skotflaugum og öðrum flugskeytum gegn orkuinnviðum okkar, borgum og almenningi,“ skrifar Zelensky.
„Þó að bardagamenn okkar hafi náð að skjóta fjölda þeirra niður er umfang árása Rússa svo gríðarlegt, sérstaklega gegn orkuframleiðslu, að afleiðingar þeirra hafa verið alvarlegar.“
Það sé mikilvægt að evrópsk bandalagsríki Úkraínu styðji ríkið áfram. Bandaríkin verði að átta sig á því hvað sé að eiga sér stað í landinu – þau dragi úr stuðningi á sama tíma og Rússar beini spjótum sínum að orkuinnviðum.
„Rússar eru að reyna að valda orkukrísu í Úkraínu rétt fyrir veturinn. Rússar vilja skilja milljónir okkar eftir án rafmagns og hita. Við þurfum þrýsting til að stöðva þessar aðgerðir. Þögn frá Bandaríkjunum, minni þrýstingur á innrásarherinn, fjárhagslegur ágóði fyrir Pútín – allt þetta hvetur hann til að halda árásum sínum áfram. Við megum ekki gefa eftir, við megum ekki gefast upp.“