Donald Trump Bandaríkjaforseti skrifaði undir forsetatilskipun í gær sem felldi úr gildi viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna gegn Rússlandi.
Þær beindust einna helst gegn orku- og varnarmálageirum landsins, Vladímír Pútín Rússlandsforseta og öðrum háttsettum embættismönnum, sem og gegn skuggaflota Rússlands.
Stutt frá síðasta samkomulagi
Aðeins vika er síðan Trump gerði samkomulag við Pútín um afhendingu á 300 þúsund tonnum af dísilolíu fyrir Bandaríkin og alþjóðamarkað. Einnig er gert ráð fyrir að Rússland afhendi að auki 500 þúsund tonn af dísil í nóvember og eina milljón tonna í desember.
Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna veitti Rússum leyfi fyrir sölu, afhendingu, affermingu og innflutningi á dísilolíu frá Rússlandi fram til 7. apríl 2027.
Í tilefni af samkomulaginu sagði Pútín í samtali við rússneska fjölmiðla að til lengri tíma litið gætu Rússar afgreitt allt að þrjár milljónir tunna af olíu á mánuði.
Gerður að blóraböggli í aðdraganda kosninga
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti hefur gagnrýnt Bandaríkjastjórn harðlega fyrir tilslakanirnar. Trump hefur á móti reynt að kenna árásum Úkraínuhers á rússneskar olíuhreinsunarstöðvar um hækkandi olíuverð þrátt fyrir að sérfræðingar séu sammála um að það megi frekar rekja til stríðs Trumps við Íran.
Á fjölmiðlafundi í Brussel í gær var Zelensky spurður hvort hann teldi Trump nota sig sem blóraböggul í aðdraganda þingkosninga í Bandaríkjunum í nóvember. Zelensky lét sér nægja að brosa kankvís. „Þetta er svar mitt,“ sagði hann síðan eftir stutta þögn og uppskar hlátur viðstaddra.