Norski herinn hefur komist að því að bílar frá Kína hafi safnað viðkvæmum upplýsingum um starfsemi hans.
Meðal þess sem bílarnir skráðu og geymdu voru myndbandsupptökur af heræfingum, aðgangskóðar að hersvæðum og ferðir yfirmanna í hernum. Þetta hefur norska heimavarnarráðuneytið staðfest við AFP-fréttaveituna.
Bílaframleiðandi í eigu kínverska ríkisins
Það var á öryggisæfingu um miðjan september sem norskir hermenn uppgötvuðu að bílaleigubílar þeirra væru að safna gögnunum. Þeir biðu þá í bílum sínum og voru að skoða stillingar á skjánum í mælaborðinu þegar þeir sáu myndböndin sem bíllinn hafði geymt í minninu.
Bílarnir voru teknir á leigu hjá bílaleigunni Hertz en bílarnir eru af gerðinni Deepal og eru framleiddir af kínverskum bílaframleiðanda í ríkiseigu. Ekki er vitað hvort gögn sem bílarnir söfnuðu hafi ratað til Kína.
Norski herinn hélt þó áfram að nota bílana til loka æfingarinnar þar sem aðrir valmöguleikar voru ekki í boði en myndböndum í þeim var eytt áður en bílunum var skilað.
Hertz í Noregi segir við AFP að gögn viðskiptavina þeirra séu örugg og að engum persónuupplýsingum sé deilt með þriðja aðila en tók ekki fram hvort umhverfismyndbönd séu meðtalin.